Húsbíll

Það er alltaf jafn furðuleg sjón að sjá svona stór hús flutt á bílum. Ég man þegar ég var krakki þá var ég stödd hjá afa á Akureyri þegar ég varð vitni að svona húsaflutningum. Það var stóra húsið sem ég sé alltaf þegar ég keyri inn í bæinn, með kvistum ekki svo ólíkt þessu en svo ótrúlega stórt og er ég viss um að fæstir átta sig á því að þetta hús var ekki byggt þar sem það stendur í dag.

Þessir flutningar á húsi númer 74 við Laugaveg eru umdeildir eins og kemur fram í fréttinni. Það er alltaf áhætta að flytja svona hús, en í þessu tilfelli gekk allt að óskum og vona ég að það eigi eftir að sóma sér vel við Nýlendugötu.


mbl.is Ekið með hús um borgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband