Mest myndaða kona sögunnar

Díana prinsessa

Ég man líkt og gerst hafi í gær þegar Díana prinsessa dó í bílslysi í París í ágúst 1997. 

Dauði Díönu var heimsfrétt, enda höfðu fjölmiðlar fylgst með hverju fótmáli Díönu frá því að hún trúlofaðist Karli Bretaprinsi og giftist síðan með pompi og prakt. Hún var mest myndaða kona sögunnar og voru ófáar myndir teknar af henni í þróunarlöndunum en var hún ötull talsmaður þeirra sem minna máttu sín og lét hún sig málin varða. Hún var ótrúlega heillandi persóna sem vissulega hafði mikil áhrif á marga og bar ég alltaf mikla virðingu fyrir henni og var ég slegin eins og  flestir aðrir við skyndilegan dauða hennar. Ýmsar kenningar voru um að hún og Dodi Fayed hefðu verið myrt, en í fyrra var gefið út eftir níu ára rannsókn að Díana prinsessa hefði dáið af slysförum og hrakti það allar samsæriskenningar um að þau hefðu verið myrt, enda var bílstjórinn fullur.

Hún Díana átti ekki alltaf sjö dagana sæla. Þrátt fyrir að hún kæmi jafnan fram brosandi, svo sjálfsörugg og glæsilegt, kom seinna í ljós að hún barðist við þunglyndi, átröskunarsjúkdóm og sjálfsmorðshugsanir. Ég man hvað það hafði djúpstæð áhrif á marga, þegar hún opinberaði þetta og hjónabandserfiðleika sína í sjónvarpsviðtali. Með því tókst henni að beina kastljósinu að þessum sjúkdómum og því að allir, meira að segja prinsessur, gætu átt við slíka erfiðleika að etja. 




 


mbl.is Bretaprinsarnir segjast hlakka til minningatónleikanna um móður þeirra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband