Aukin ţjónusta ţrátt fyrir mikla uppbyggingu í Mosfellsbć - fjárhagsáćtlun 2008 lögđ fram

Fjárhagsáćtlun Mosfellsbćjar var lögđ fram í bćjarráđi í morgun og vísađ ţar til fyrri umrćđu í bćjarstjórn. Í ţessari fjárhagsáćtlun eru megináherslur á aukin og bćtt ţjónusta viđ íbúa, uppbygging á ţjónustumannvirkjum í ört stćkkandi sveitarfélagi og ađ rekstur verđi áfram ábyrgur,  traustur og til fyrirmyndar. 

Heildartekjur  Mosfellsbćjar eru áćtlađar 4.065 mkr og heildargjöld 3.798 mkr.  Útsvarsprósenta verđur óbreytt milli ára eđa 12,94% og er Mosfellsbćr eitt fárra sveitarfélaga sem ekki fullnýtir útsvarsprósentuna.  Samkvćmt áćtluninni verđur rekstrarniđurstađa samstćđunnar  af reglulegri starfssemi jákvćđ um 92 mkr.  Auk ţess eru tekjur af sölu byggingarréttar áćtlađar 645 mkr. sem renna eiga til uppbyggingar á skólamannvirkjum í nýjum hverfum á nćstu árum. En allt stefnir í ađ íbúafjölgun á árinu 2008 verđi um 11%. Gert er ráđ fyrir ađ heildarskuldir bćjarfélagsins og skuldir á íbúa haldi áfram ađ lćkka. 

Á árinu 2008 er áćtlađ ađ verja um 775 mkr. til uppbyggingu skóla- og íţróttamannvirkja, ţ.m.t. byggingu nýrra grunn- og leiksskóla, hafist verđi handa viđ byggingu framhaldsskóla í samvinnu viđ ríkiđ og sérstökum endurbótum á eldra skólahúsnćđi í bćjarfélaginu.  Hafist verđur handa um byggingu menningarhúss í tengslum viđ byggingu kirkju  í miđbćnum og hjúkrunarheimilis á Hlađhömrum.

Áfram verđur haldiđ á ţeirri braut ađ Mosfellsbćr verđi í fremstu röđ í ţjónustu sinni viđ barnafjölskyldur.  Útgjöld til frćđslumála aukast um tćp 18% eđa um 275 mkr.  og er ţađ í takt viđ aukna ţjónustu. Leikskólavist 5 ára barna verđur  gjaldfrjáls og međ ţví áfram stuđlađ ađ lćgri kostnađi fyrir barnafjölskyldur.

Gert er ráđ fyrir ţví ađ á árinu 2008 fari fram vinna viđ ađ samtvinna starf í frístundaseljum og almennu grunnskólastarfi ţannig ađ til verđi heilsdagsskóli í fullmótađri mynd fyrir yngstu bekki grunnskólans.  Ţegar ţessu markmiđi er náđ gefst tćkifćri til ađ fella niđur gjaldtöku fyrir frístundasel ţannig ađ nám og vera í grunnskólum verđi gjaldfrjáls. 

Sú nýjung verđur kynnt á árinu 2008 ađ teknar verđa upp heimgreiđslur til foreldra eins til tveggja ára barna til ađ jafna stöđu ţeirra og stuđla ađ ţví ađ foreldrar geti veriđ lengur heima hjá ungum börnum sínum.

Gert er ráđ fyrir verulegri hćkkun á framlagi til íţrótta- og tómstundafélaga vegna barna og unglingastarfs sem og ađ frístundagreiđslur hćkki og aldursviđmiđ ţeirra.

Fjárhagsáćtlunin gerir ráđ fyrir ađ sérstakt átak verđi gert í umhverfismálum  međ ráđningu umhverfisstjóra sem m.a. hafi málefni stađardagskrár 21 í sinni könnu sem og auknum framlögum til umhirđu opinna svćđa og leikvalla.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvurs lags er ţetta Herdís, er bćnum stjórnađ af framsóknarmönnum, allt svona ljómandi flott og gott.     Kveđja frá Sarajevo.  G.F

Guđm.Fylkis (IP-tala skráđ) 29.11.2007 kl. 16:41

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Right Gummi, gott ađ sjá ađ ţú ert enn á lífi og sprćkur, en greinilega međ pínu óráđ líka .

Ţađ var svo sem alveg á mörkunum međ mig sjálfa í dag, fékk svona rosalega gubbupest. Ég var frekar slöpp í morgun, sleppti skólanum og kannski eins gott. ţví ég rétt marđi ţađ heim. Strákurinn veikur í gćr og svo kom stóra stelpan heim í dag međ blússandi hita og gubbu..

Herdís Sigurjónsdóttir, 29.11.2007 kl. 23:54

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband