Strákurinn fékk útrás í íţróttum

Ég sá Lindu Finnboga á forsíđu 24 stunda ţar sem hún var ađ rćđa um frumburđinn sinn Björgvin Pál Gústavsson, varnarmanninn knáa. Ég var ekki búin ađ átta mig á ţví ađ ţetta vćri strákurinn ţeirra Lindu og Gústa Dan, fyrr en ég las viđtaliđ. Mér ţótti ţetta hjartnćmt og yndislegt viđtal og var auđvelt ađ lesa gegnum línurnar afar náiđ samband ţeirra mćđgina, enda ljóst ađ ţau hafa gengiđ saman í gegnum súrt og sćtt.

Ţetta er gott viđtal og ţyrfti ađ gera meira af ţví ađ segja sögur af ţví hvernig hćgt er ađ vinna međ kraftmikla krakka, en fyrsta sem fólki dettur í hug er ađ fá rítalín til ađ hemja ţau í stađ ţess ađ leita leiđa til ađ krafturinn fái útrás, líkt og Björgvin Páll fékk í íţróttum. Ţetta var eitthvađ svo myndrćnt og skemmtilegt og gat ég alveg séđ hann fyrir mér stóran og stćđilegan strák í dansi, fimleikum og karate. En gott ađ hann fann sig í handboltanum. Ég segi nú bara "lániđ okkar Íslendinga".

Til hamingju međ strákinn Linda mín, viđ söknuđum ţín á Reykjaskólamótinu um daginn.


mbl.is Handboltinn bjargađi honum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

ÉG skrifađi einmitt um ţetta líka. Minn var greindur og mér bođin lyf en ég ákvađ ađ taka á ţessu sem óţekkt og yfirgangi. Ţetta lagađist svo smátt og smátt, hann ţurfti bara alltaf ađ hafa verkefni. Í dag er hann nýbúinn ađ stofa verktakafyrirtćki í Köben. ekkert lćrđur vegna framheilaskađans sem hann fékk í slysinu 2000 en er alveg frábćr og vinsćll. Hann vinnur viđ enduruppbyggingu eldri íbúđa í Köben.  Kćr kveđja hálfnafna og njótt helgarinnar, er bóndinn ađ koma til??Bouncing Hearts  Bouncy 2 Bouncing Hearts 

Ásdís Sigurđardóttir, 23.8.2008 kl. 16:16

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband