Mikið óskaplega er ég orðin leið á svona bréfum..

Fékk þetta sent í e-mail áðan frá 

Efni bréfs: Faðmal frá Frú Isabelle Anthony 

Kærust á Drottin,

Með fullri virðingu og mannúð, ég var neydd til að skrifa í mannúðarmálum sviði.

Ég er ekkja Isabelle Anthony öldrun langtíma veikindum ( krabbamein ) . Eru nú tekin til einkasjúkrahús. Ég hef nokkurn pening sem ég arf frá eiginmanni mínum, James Anthony, sem síðar lést í bílslysi.

Þegar maðurinn minn var á lífi hann afhent summan af € 2.700.000.00 ( tvær milljónir 700 þúsund Euro) í banka. Eins og er, þetta fé er enn í bankanum.

Læknirinn minn sagði mér að það myndi ekki endast næstu 3 mánuði vegna krabbameins problem.I þarf einhvern mjög heiðarleg og skynjar guðhrædd og skipulag sem hægt er að nota þessa sjóði fyrir verk Guðs Maðurinn minn seint kennt að þessi sjóður ætti að nota fyrir góðgerðastarfsemi, svo sem byggingu skóla, hús munaðarleysingjahæli, sjúkrahúsum, osfrv

Ég tók þessa ákvörðun vegna þess að ég hef ekki öllum börnum sem munu erfa þessa peninga og ég vil Guð vera mér náðugur og taka sál mína . Með Guðs allt er mögulegt. Vinsamlegast, ef þú vilt vera fær um að nota þessa fjármuni til að vinna Guðs, vinsamlega svara.

Ég vil að þú að senda mér eftirfarandi upplýsingar sem vísað er til hér að neðan.

Fullt nafn -----------------------
Land þitt -------------------------
Heimilisfang þitt --------------------------
Aldur þinn ------------------------------
Atvinnusögu -----------------------
Í síma ------------------------

Um leið og ég fæ svar þitt skal ég gefa þér samband við bankann og ég mun einnig mun gefa þér bréf af heimild sem mun sýna að þú ert núverandi nýtur góðs af þessum sjóði.

Vonast til að fá svar við spurningu þinni. Verið blessuð í Drottni.

takk, Isabelle Anthony


Prófkjörsframbjóðandinn Sturla Sær

 
 
Tue 14. Jan 13:10
Mig langar soldid ad bjoda mig fram
Tha skaltu gera thad ;)
rennur ut a morgun :) 
 
Svona voru sms samskipti okkar mæðgina þann 14. janúar sl. og tilefnið var löngun Sturlu til að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ sem fram fer næsta laugardag, 8. febrúar.
Eflaust hafa margir haldið að ég hefði pressað á hann að gefa kost á sér, en það var alls ekki. Þetta er hans prívat ákvörðun sem hann tók í sögutíma í MS. 
Frá því að þetta sms var skrifað er hann búinn að safna meðmælum, gera Sturla Sær í 6 sæti Facebook síðu, fara í myndatöku og skrifa greinar eins og þessa sem birtist í síðasta Mosfellingi og fjallar um hvernig það er að alast upp í Mosfellsbæ.  

Að alast upp í Mosfellsbæ

Ég er Mosfellingur.

Það er kannski ekkert rosalega langt síðan ég fæddist eða tæp 19 ár, en á þeim tíma hefur Mosfellsbær breyst óskaplega mikið. Búið er að byggja höfðahverfið þar sem við fjölskyldan búum, einnig Krikahverfið, Tröllateiginn, Þrastarhöfðann, Leirvogstunguna og Helgafellshverfið. Komið er torg sem er frábært að safnast saman á þegar það eru hátíðir eða bara á sumrin þegar veðrið er gott.

Minn árgangur var sá fyrsti sem var öll 10 árin í Lágafellsskóla og hafa verið stækkanir í Lágó á þeim tíma sem ég var þar. Það var skemmtilegur tími og frábært þegar útibúið við Bólið var opnað í okkar hverfi. Lágafellslaug er besta laugin á svæðinu og veit ég um marga sem koma úr Reykjavík til að fara í sund þar. Áður en hún kom þurftum við að fara í rútu í Varmárlaug, sem var skemmtilegt en gat verið þreytandi á tímum.

Búið er að byggja nýja leikskóla og nú eigum við líka Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Íþróttaaðstaðan er miklu betri núna. Búið er að gera gervigrasvöllinn og svo eru líka komnir litlir fótboltavellir við skólana, sem slegist var um í frímínútum. Það var gerður skatepark í Reykjahverfinu og man ég hvað það var spennandi. Við krakkarnir höfum notað hann mikið, en það mætti klárlega laga hann og stækka. Hjólastígar og göngustígar sem búið er að gera eru mikið notaðir og sér maður hjólafólk um allt, líka yfir veturinn.

Það er gott að vera Mosfellingur. Ég vill að bærinn haldi áfram að stækka og þróast og reynast komandi kynslóðum eins vel og hann hefur reynst mér. Þess vegna langar mig til að taka þátt í sveitarstjórnarmálum.

Ég, Sturla Sær Erlendsson, bíð mig fram í 6 sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna. 

Ég verð að viðurkenna að ég er stolt af þessum 18 ára syni mínum og veit að hann á eftir að gera góða hluti í framtíðinni. Næsta verkefni er prófkjörið á laugardaginn og vona ég að honum gangi vel og hann fái tækifæri til að læra meira um sveitarstjórnarmálin eins og hann langar til.

1495504_10202264802595294_1875136368_n (1)

 


Annáll Rituhöfðafjölskyldunnar árið 2013

Árið 2013 hefur verið viðburðarríkt hjá Rituhöfðafjölskylduinni og skiptust á skin og skúrir í lífinu líkt og mörg undanfarin ár. Sumarið í Mosfellsbænum kom aldrei og rigndi meira en önnur ár og verður heita vikan lengi í minni höfð. Það jákvæða var þó að geitungarnir sáust ekki.

Rapport af Rituhöfðafjölskyldunni

Elli og Efla eru enn eitt og hefur karlinn mest verið að vinna í verkefnum fyrir álverið á Grundartanga og Reykjavíkurborg þetta árið. 

Elli og Gulli - Vestfjarðahringurinn

 

 

 

 

 

 

 

Hjólagarpurinn hjólar daglega í vinnuna og eru klárlega flestu færslurnar á Facebook Endomondo Sports Tracker innskot. Eins lukkulegur og hann var með nýja samgöngustíginn meðfram Vesturlandsveginum tókst honum að slasa sig þar í hálku þegar bremsurnar biluðu og hann kútveltist og sleit viðbeinið frá öxlinni í byrjun árs. En hann lét það ekki stöðva sig og hélt áfram að hjóla um leið og hann gat farið að nota báðar hendur.

Líkt og fyrri ár var Ellinn duglegur að hreyfa sig. Gekk á fjöll og fór í fjölmarga laaaaaaaaaaaaaanga hjólatúra og stendur júlíferðin, Vestfjarðarhringurinn með góðum UMFUS vinum klárlega upp úr. Hjólaðir voru 540 kílómetrar á misgóðum vegi og fóru kvöldin í samkvæmisleiki ala Halla Karen sem klikkar bara aldrei. Búið er að leggja drög að Austfjarðarferð næsta sumar þar sem Elli mun fara með fararstjórn. 

Innskot af Facebook 18. júlí. 

"UMFUS naglarnir Elli og Gulli komnir aftur í sveitina eftir hjólatúrinn mikla. 540 km vestfjarðahjólahringur að baki."

Í september fór Elli í snjóhjólaferð með Eflufélögum og viðbeinsbrotnaði Ellinn á Syðri fjallabaksleið og þarf ekki nokkurn mann að undra sem sér þessar snjómyndirnar úr ferðinni, það hefði verið nær að fara á snjósleða. Á afmælisdegi hans í október keypti hann sér nýtt og enn betra lauflétt hjól svo verður örugglega skrifað um ný hjólaafrek í annál ársins 2014. 

Til að tryggja að Rituhöfðaliðið fengi jólarjúpurnar fór Elli á rjúpu í Hrunamannaafrétti og á Norðurlandi og má segja að sérlega vel hafi borið í veiði í einum veiðitúrnum þegar karlinn  kom heim með tvær rjúpur og einn lax. Þar með er búið að bjarga bæði forrétti og aðalrétti á jólunum.

Herdís hóf árið í því að stíga út úr bæjarstjórn Mosfellsbæjar sæl og ánægð eftir fjórtán og hálfs árs setu. Aftur var snúið til starfa hjá VSÓ Ráðgjöf sem sviðsstjóri öryggis- og stjórnunar þar sem unnið er að fjölbreyttum og spennandi verkefnum.

12358_10200922624413944_2037627532_n

 

Árið 2014 var nefnt í tengslum við hamfaradoktorsnafnbót, en ljóst er að það gengur ekki eftir, en hver er að telja! Má segja að heilahimnubólga sem frúnni tókst að næla sér í í apríl eftir inflúensu hafi ekki flýtt lúkningu, en aftur, hver er að telja?

Aftur var farið til Japans á árinu, í þetta sinn til að funda með samstarfsfólki í Iwate háskóla. Flutti japansunnandinn og hamfarakonan einnig opinn fyrirlestur í háskólanum sem var ekki síst hvatning til ungra japanskra kvenna um að láta taka til sín í lífinu, en þar í landi er ekki óalgengt að konur hætti að vinna þegar þær giftast. Sem hluti af starfi fyrir Iwate háskóla var haldið annað námskeið um hreina orku hér á Íslandi í september og komu 6 lærdómsfúsir háskólanemar að þessu sinni. Tókst það með ágætum og voru kennslustofurnar m.a. Hellisheiðavirkjun, Hveragerði, Búrfellsvirkjun, Reykjanesvirkjun, Svartsengi og Bláa lónið.

Að vanda verður að taka World Class stöðuna sem er með verra lagi seinni part ársins hjá  Rituhöfðamömmunni. Þó er búið að nýta göngustígakerfi Mosfellsbæjar töluvert, í bænum þar sem best er að búa. Enn er stefnan sett á bezta form um fimmtugt og þykir ljóst að virkja verði Sigrúnu grönnu í það þrekvirki

Ásdís Magnea Fjeldsted

Frumburðurinn Ásdís Magnea er nú orðin tuttugu og eins og er ljúfust og fallegust og dansar og syngur fyrir allan peninginn líkt og fyrri ár. Hún er reglulega búin að taka á því í ræktinni þetta árið bæði í Cross Fit og World Class.

ame

 

Ásdís er búin að vera iðin og dugleg þetta árið líkt og fyrri ár. Hún fór í febrúar til Steinunnar vinkonu sinnar í Leeds og sá hana m.a. á sviði þar sem hún lék löggu í leikritinu Aladin.

Undur og stórmerki áttu sér stað í fernuhópnum þegar fyrsta barnið fæddist. Hann Krúttmundur Davíðs og Dagbjartarson sem fæddist 19. október og fékk fallega nafnið Vignir Leó.

Ásdís vann áfram á Hlein, sambýli fyrir fatlaða á Reykjalundi. Hún Stísa skvísa flutti út á árinu og aftur heim og vorum við foreldrarnir ekki viss hvort það er sú staðreynd að við eru ekki búin að kaupa handa henni rúm í tvöfaldri breidd eða „að fljúga úr hreiðrinu“ heilkennið sem veldur, en hún er búin að taka ákvörðun um að flytja að heiman um áramótin og flutti dótið sitt 27. desember. Að mati mömmunnar er „barnið“ full ánægt með þessa ákvörðun, en eitt er ljóst að hún Ásdís Magnea tekur glöð og ánægð á móti nýja árinu, sem verður árið hennar!

Sturla Sær Erlendsson Fjelsted er orðinn átján og aldeilis ekkert barn, enda þyrfti hann þá ekki að raka sig.

sturlaHann er á þriðja ári í Menntaskólanum við Sund og nýtur menntaskólalífsins til fulls og stendur sig súper vel í skólanum . Tók hann frönskuna með glans og fór í munnlegt próf til Parísar með bekkjarfélögum í október.

Á haustönn tók hann fatasaum í vali og brillerar við saumaskapinn. Hann er búinn að hanna og sauma sér boli, buxur, jakka, brók .... og kaupa sér nokkra tugi skópara. Sturla og félagi hans hafa setið löngum stundum við saumavélar frá ömmum sínum og sauma sem enginn sé morgundagurinn. Hefur mamman hug á að fá hann til að sauma á sig útskriftarupphlut og hver veit nema það gangi eftir.

Stulli hefur unnið í Fiskbúðinni Mos allt árið líkt og fyrri ár og steikir fiskibollur með skóla.

Litli heimspekingurinn okkar fröken Sædís Erla Erlendsdóttir hélt upp á fyrsta stórafmælið og fyrsta tuginn í október. Varð það eiginlega svona afmælismánuður hjá henni, svo oft hélt hún upp á áfangann með hinum ýmsu hópum. 

Hún stendur sig vel í skólanum. Í haust var bekkjunum skipt upp og fékk hún því nýja bekkjarfélaga og kennara, hana Leu og tekur virkan þátt í því að gera bekkinn að þeim BESTA í skólanum, nema hvað!

Sædís Erla á fjölmargar vinkonur og leiðist aldrei. Hún er ekki komin með Facebook eins og margar vinkonurnar, en Snapchat sem þarf að sinna og er gott að hafa nýja Ipadinn sem hún keypti sér í Ameríku í nóvember, eftir að hafa safnað fyrir honum í yfir ár. Hún átti sér þann draum að eignast Iphone sem varð að veruleika fyrir tilstuðlan Ameríkuliðsins.

Sædís tekur áfram þátt í skátunum af lífi og sál og er skátastarfið í fyrsta forgangi. Er hún stoltur fálkaskáti og hefur hún farið í útilegur og skátaferðir og hlakkar til landsmóts. Hún æfir líka frjálsar hjá Aftureldingu og áfram vinnur strákana í bekknum í píptestunum. Ekki vitum við hvort það voru háhæluðu jólaskórnir sem hún færði rök fyrir í fyrra með því að Hlynur frjálsíþróttaþjálfari hefði sagt að ef hún væri dugleg að ganga á táberginu þá myndi hún hlaupa hraðar, eða hvort hún hefur æft sig meira, en í það minnsta þá vann hún alla fimmtubekkina í hlaupi UMSK í október. Flottur árangur hjá Sædísi Erlu.

see_umsk2013

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Innskot af Facebook 11. október.

"Er að rifna úr stolti yfir Sædísi Erlu sem sigraði UMSK hlaupið í morgun   feelingproud."

Bónusbarnið okkar Sirrý er flutt á Laugarveginn með Óla sínum og bíðum við spennt eftir litlu viðbótinni sem væntanleg er í janúar.

1551578_10202865431666616_316285629_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skvísý okkar er alltaf jafn yndisleg og fékk nýtt look á árinu, nýja klippingu hjá Dekurdýrum og er bara sátt með það, en við hinn erum ekki jafn sannfærð.  

535815_10200817782632965_934206791_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Örfréttir af stórfjölskyldunni

amma_siglojan

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Amma á Sigló unir sér vel á Laugarveginum ásamt Lady og var gestkvæmt í eldhúsinu líkt og fyrri ár. Hún rekur Gallerí Sigló ásamt stelpunum og eru þær alltaf jafn duglegar.  Amma fór aftur til Ameríku í lok árs eins og í fyrra og nýtur lífsins með Jóhannsleggnum og Emmu vinkonu sinni sem nýkomin er frá Ástralíu. Amma er hin mesta tölvukerling og heldur sambandi við okkur fjölskylduna og umheiminn á netinu. 

menningarnott_systur

 

 

 

 

 

 

 

Kristín er flutt í Hafnartúnið á Siglufirði og stundar nám í listljósmyndun við Menntaskólann á Tröllaskaga og hefur metnaðurinn ekkert dvínað. Hún ljósmyndar alla daga og er búin að halda sýningu í Bláa húsinu og gleðja myndirnar hennar marga. Ég er ekkert búin að skipta um skoðun varðandi það að ljóst er að hún mun gera stóra hluti í ljósmyndun  í framtíðinni. Hún hefur m.a. verið að aðstoða við ljósmyndun á nýja glæsilega hótelinu á Siglufirði sem kennt er við Siglunes, en ég kalla enn Höfnina.

doddi_fellini_2013

 

 

 

 

 

 

 

Þórður Matthías rekur enn Fellini í Egilshöll og erum við búin að koma oft við á árinu og verðum aldrei fyrir vonbrigðum.

Sjonnalingar_2013

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigurjón Veigar stundar sjóinn af kappi og fluttu þau Halla og strákarnir ásamt hundunum Bronco og Bjöllu til Grindavíkur á árinu. Lítill Sjonnalingur kom í heiminn 19. desember og er mikil hamingja yfir litlu viðbótinni. Toggi byrjaði í skóla s.l. haust, Engill bara sáttur í Grindavík og Kristján Gabríel fermdist.

Innskot af Facebook 19. desember

"Litli Sjonnalingurinn mættur. Fullkominn!! This little Mr. perfect was born just an hour before this photo of us was taken. He is a son of Sigurjon my sisters son and Halla. But I am his Aunt-granny ... that is just how it is J" 

Raggi Freyr býr í Grindavík og er hann búinn að reyna fyrir sér við bílasölu sem ekki þarf að koma neinum á óvart. Siggi Freyr stendur sig vel í flugvirkjanámi í Grikklandi þar sem er óskaplega heitt á sumrin en íííískalt yfir veturinn, en hann lifir, enda ættaður að Norðan.

1441543_10201785888761686_173377870_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

580541_4456302904318_1029193200_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Amma Binna dansaði í minna lagi þetta árið, en áfram prjónar hún og heklar. Hún vinnur enn á Hlein og í Fiskbúðinni. Frúin ferðaðist í minna lagi þetta árið. Hún skellti þó sér á Sigló í viku í júlí og það rigndi og snjóaði allan tímann. Ekkert varð úr réttum fyrir Norðan þetta árið því það var spáð brjáluðu veðri og því var réttað í miðri viku. Hún er komin með 304 vini á Facebook

hjolaslys_jan2013

 

 

 

 

 

 

 

Af Sigga og Ingu Rósu er það að frétta að þau ákváðu að segja skilið við fiskbúðarrekstur og fór karlinn að vinna hjá Nóatúni og Inga Rósa kokkar enn í skólanum. Einar Kristján er eldsprækur í fyrsta bekk í Lágafellsskóla og Birna María í þeim áttunda.  Áfram er verið að kæjakast og jeppast og fóru þær mæðgur til Danmerkur með skólahljómsveitinni í sumar og skemmtu sér hið besta.

521998_1384203201806611_800281789_n

 

 

 

 

 

 

 

Jóhann og Shirley hafa það fínt í Seattle og er alltaf jafn gaman þegar Jóhann lætur sjá sig á klakanum kalda, sem gerist nokkrum sinnum á ári. Þau Jóhann og Shirley komu til Íslands í sumar sem var frábært.

21464_10201152331744218_795798019_n

 

 

 

 

 

 

  

 

Fór Rituhöfða mamman til Ameríku og var viðstödd útskrift Kristínar Jóhannsdóttur sem lauk meistaranámi í lífefnafræði sem var sérlega gaman. Í fyrsta sinn sem það hefur tekist (að vera við útskrift þ.e.).

1004031_10200752599311157_1849542105_n

 

 

 

 

 

 

 

 Jóhann Pétur, Kristín og Theresa við útskriftina

Jóhann Pétur er orðinn er háskólanemi. 

Innskot af Facebook 8. júní

"Kristín Jóhannsdóttir okkar sómi og ljómi útskrifaðist frá Central Washington University með meistarapróf í lífefnafræði. Var það stolt frænka sem var viðstödd athöfnina. Eftir útskriftina voru vinir hennar með stórskemmtilegt útskriftarpartý þar sem hundar og menn áttu saman góða stund fram eftir degi og unga fólkið fram á nótt. Daginn eftir fór Kristín með okkur í háskólann sinn og sýndi okkur vinnuaðstöðu sína. Frábærir dagar frá A-Ö. "

Frú Sarah er 28 ára súpermamma og eignuðust þau Cory Finley litlu þann 6. júní og hefur Emma staðið sig vel sem stóra systir frá fyrstu mínútu og fannst okkur gaman að fá tækifæri til að vera með þeim öllum í lok ársins.

Innskot af Facebook 6. júní:

"Super super happy Vandervort family. Fallega hamingjusama fjölskyldan með nýju viðbótina. Weight and length: 7.8 / 3405 gr (næstum 14 merkur) and 21.26 in / 54 cm"

8635_10200733009821432_1340733011_n

 

 

 

 

 

 

 

Sturla afi og Stína amma eru þokkalega spræk og hafa þau farið nokkrar ferðir til Spánar á árinu. Þau reka enn matvöru- og byggingavöruverslanir sínar og einnig gistiheimilið sem er að verða það vinsælasta á Snæfellsnesinu. 

531943_10201447318278697_234537442_n

 

 

 

 

 

 

 

Ætt- og vinarækni fjölskyldunnar var í meðallagi þetta árið, en fundust nokkrar nýjar frænkur og frændur sem alltaf er gaman. Til að mynda sóttum við fyrsta ættarmót ættingjaleigunnar í Svörtu kríunni á Siglufirði 28. júlí. Það skemmtilegasta við þetta ættarmót var að skyldleiki var alls ekki aðalatriði.  Þegar Rituhöfðamamman var að undirbúa ræðu í brúðkaupi Ellu og Róberts fann hún út að Ella væri skyld hennir og því má segja að þetta hafi verið n.k. ættarmót :).

Fóru Rituhöfðahjónin loksins loksins loksins á réttarhelgi að Þverá til þeirra Rúnars og Bjarkar. Þvílíkt fjör og stórkostlegur félagsskapur. Hér eftir verður ALLT gert til að ná þessari helgi með okkar góðu vinum!

Einn ljúfan dag í september fékk Rituhöfðamamman sent punktatilboð frá Icelandair eins og svo oft áður. Það hefði svo sem ekki verið fásögu færandi nema því í þetta sinn var það til Seattle. Tókst frúnni að kaupa ferð fyrir alla fjölskylduna fyrir sama verð og venjulega kostar fyrir einn og valdi daga í nóvember sem innifólu þakkargjörðahátíðina. Fór öll fjölskyldan saman og amma á Sigló með og áttum við góða daga með Jóhanni og fjölskyldu í Seattle og þar sem við vorum úti á svarta föstudeginum létum við það eftir okkur að fara að versla árla „Black Friday“, eða kl.6.30 til að vera nákvæmari. En upp úr stendur kalkúnaveisla og samvera á sjálfan Þakkargjörðardaginn með þeim Jóhanni, Shirley, Söru, Cory, Finley og Emmu, Jóhanni Pétri, Kristínu og nýja Nick.

Í annað sinn var haldið októberfest í Rituhöfðanum fyrir afmælisbörn októbermánaðar þau Sædísi Erlu, Ella og Ásdís Magneu. Var boðið reyndar haldið í nóvember þetta árið, en það tókst með ágætum.  

Örfréttir: Linda Ósk fimmtug, Frímann Ægir fimmtugur, Kolla fertug, Solla og Héðinn eignuðust tvíburastráka, Jóla fertug .... Sigrún María orðin doktor og líka Ásthildur Elva .. þetta fer að koma :)

Innskot af Facebook 10 ágúst.

"Róbert Pálsson (Gunnlaugssonar) frændi minn gekk að eiga Ellu sína 10. ágúst 2013 og vorum við viðstödd ásamt fjölda vina og ættingja. Giftu þau sig í safnaðarheimilinu í Sandgerði og var veislan haldin í félagsheimili Oddfellowa í Grófinni í Keflavík. Dásamlegur dagur í fallegu veðri og yndislegum félagsskap." 

988697_10201174646582075_1094222876_n

 

 

 

 

 

 

 

 

Þær sorglegu fréttir bárust þegar við vorum hjá Jóhanni í byrjun desember að bræðurnir og frændur okkar þeir Hafliði og Þorsteinn Karlssynir hefðu látist sviplega með nokkurra tíma millibili. Þorsteinn af völdum höfuðáverka og Hafliði af heilablóðfalli skömmu síðar. Ótrúlega sorglegt og var höggvið stórt skarð í frændgarðinn.

Eins og alltaf mættu heimsóknir til vina og ættingja vissulega vera fleiri, en hver veit hvað nýtt ár ber í skauti sér. Í þessu sambandi má vissulega þakka fyrir að fá tækifæri til að fylgjast með fólkinu sínu á Facebook.

Heima er best í hófi

 

rito

 

 

 

 

 

 

 

Nokkuð var um ferðaflandur á árinu og fór fjölskyldan m.a. í hina árlegu páskaferð á Siglufjörð, en að þessu sinni án mömmunnar sem var hund veik heima.

Rituhöfðahjónin fóru í tvær árshátíðarferðir til útlanda þetta árið. Í maí var farið í árshátíðarferð til Finnlands og Eistlands með VSÓ Ráðgjöf. Afskaplega vel heppnuð ferð í alla staði með frábærum samstarfsfélögum og mökum. Hefði verið betra að hafa heilsu frúarinnar í lagi, en félagsskapurinn var óborganlegur að vanda og æfðu hjónakornin m.a. bogfimi og hjólböruhlaup.

Innskot af Facebook:

„Við Hjördís frænka sátum við forsetahöllina... á þessum tímapunkti fékk fararstjórinn í magann, rúllaði augunum og sagði við samstarfsfélaga okkar. Segið mér að þessar tvær séu ekki með okkur. Ástæðan var sú að síðasta konan sem prófaði þetta í öðrum hópi hjá henni fékk ekki að vera eins  afskiptalaus á tröppunum hjá forsetanum ... Það var sem sé tekið fram þegar við komum að höllinni að það mætti alls ekki fara nærri. .. en þá verður maður líka að hlusta ... en eins og þið sjáið á myndinni hafði annar vörðurinn bara gaman að þessu.

6002_10200632752955073_1380364314_n

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efla fór í árshátíðarferð í september og varð Duflin á Írlandi fyrir valinu. Tæplega 400 „Öflungar“ í tvennu lagi til Írlands og máluðu bæinn grænan. Áttu hjónakornin frábæra daga með góðum félögum og sóttu m.a. messu hjá íslenskum presti sem var ósköp ljúft.

1382029_10201946281959864_412727973_n

 

 

 

 

 

 

 

Eftir að frúin var slegin út og send í veikindaleyfi var ferðinni heitið til Jóhanns og Shirleyar í Seattle og innifól það m.a. siglingu til Alaska með Shirley mágkonu sem var gaman og góð hvíld.

988606_10200839393160949_283054248_n

 

 

 

 

 

 

 

Loks fór frúin á hamfarafund á Kýpur í október sem var góður fundur og fróðlegur. Var sérlega gaman að skoða fornminjar og var frúin reglulega minnt á það á Facebook af vinum að taka ekki með sér steinvölu til að komast hjá því að enda eins og Íslendingurinn óheppni, sem endaði í fangelsi eftir að hafa keypt stein á markaði í Tyrklandi.

1380467_10201680411345878_540746765_n

 

 

 

 

 

 

 

Minn karla og árshátíðarbragur

Þorrablót Aftureldingar var haldið 26. janúar og var frábær skemmtun. Stormsveitin rokkaði og gaf Palli okkar Helga okkur Ásdísi minni tóninn á nikkunni fyrir minni karla sem við sungum í fimmund. Held að það hafi flestir þagnað meðan við sungum og vorum við bara sáttar með textann sem kerlingin snaraði fram til heiðurs körlunum okkar og hljómuðu fyrstu tvær vísurnar svona. 

Nú skuluð þið hlýða!

Ei lengur þurfið bíða,

Né minni karla að kvíða,

Hættu að verða hissa.

Vildi ég mega kyssa,

:;munninn þinn, þinn, þinn :;

Munninn þinn svo mjúkan finn,

Af því eigi vil missa.

 

Af kjamm‘ og pungum saddir.

Með góðu víni gladdir,

hófum hæstu raddir,

hraut hér stöku vísa,

Strákana mína' að prísa.

Punga, smakk, smakk, smakk

Punga smakk með snafsi drakk

ykkur svo að lýsa.

 

thorrablot_27jan2013

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Innskot af Facebook

"Skemmtilegasta þorrablót sem ég hef farið á held ég bara, þvílíkt stuð og skemmtun. Stormsveitin rokkaði og var Blakkur stjórnandi flottur og líka hann Palli okkar Helga sem gaf okkur Ásdísi minni tóninn en hún hjálpaði mér með minni karla sem við sungum í fimmund. Minni kvenna var stórskemmtilegt hjá Gylfa og stóð Ingvar veislustjóri sig frábærlega, er búin að leggja til að gerður verði langtímasamingur við hann. Buffið klikkar aldrei og var allt í fullu fjöri þegar við fórum heim. Ég fékk mína prívat og persónulegu auglýsingu í annál ársins sem var bara gaman. Er hætt öllu, nema á Faebook – Herdís Sigurjóns.

Borðskreytingakeppnin var skemmtileg og hefur skreytinefnd okkar sjálfstæðismanna fyrir blótið 2014 þegar hafið störf og ætlum við að taka í það minnsta tvö 40 manna langborð á næsta ári. Mikið óskaplega var umgjörðin flott og ljóst að þorrablótsnefndin kann sitt og þakka ég kærlega fyrir mig og mína. Það var frábært að hefja fjörið með því að skála við sjálfstæðismenn í Skálahlíðinni hjá þeim Röggu og Halla. Get ekki neita því að ég er farin að hlakka til næsta blóts.."

798395_595824323777003_1876423275_o

 

 

 

 

 

 

 

Bæjarfulltrúinn fyrrverandi var fenginn til að setja saman texta sem bæjarstjórn gæti flutt á árshátíð Mosfellsbæjar sem haldin var í mars. Texta var snarað fram og söng sú fyrrverandi sitt síðasta með gömlu félögum sínum óð til Mosfellsbæjar, sem var bara gaman.

Rituhöfðinn Rokkar eins og fyrri ár, en misstum við af jólaskreytifjörinu þetta árið þar sem við vorum öll í Ameríku, en settum bláu seríurnar þegar heim var komið.

1082567_10151786701847422_708577878_o

 

Það var ljótujakkaþema á götugrillinu í Rituhöfðanum í sumar og að vanda var grillað við hús númer 7, hjá þeim Gilla og Ástu. Áttu Rituhöfðahjónin ekki erfitt með að græja búningana og fóru bara í fatatöskuna frá því þegar þau kynntust og voru reglulega vemmileg í eins leðurjökkum.

 

 Innskot af Facebook:

"Gamla settið búið að vera gift í 23 ÁR! Við Erlendur Örn Fjeldsted héldum upp á það með því að fara í jökkunum sem við áttum, plús gömul föt frá þeim tíma, Elli með eyrnalokk og frúin með spiralkrullur (reyndar grænar), gömlu gleraugun og allt, alveg eins og i denn þegar við kynntumst. Nema að núna var þetta í "ljótu jakka" þema í Rituhöfðagrillinu."

Veisla aldarinnar var haldin á stóra pallinum hjá þeim Önnu Ólöfu og Ragga sem héldu upp á fertugs og fimmtugsafmæli sín. Veisla sem talað verður um leeeeeeeeeengi, sem reyndar svekkir Rituhöfðaliðið á fjögur þar sem þau misstu af fjörinu, eins og flestu öðru sem fram fór í Ritó í sumar. ARG!!

Voru heldur betur stoltir nágrannar sem tóku á móti Járnfrúnni á 6 eftir afrek hennar þegar Sigga granna kláraði Járnkarlinn.

Innskot af Facebook frá Pétri granna:

"Jæja hún kláraði IRONMAN með stæl hun Sigga heildartími 13 timar og 14 mín gerð verður bíómynd um þetta afrek.“ 

Ekki tókst Rituhöfðanum að næla sér í umhverfisverðlaunin 2013, fallegasta gatan (secretið sko) sem stefnt hefur verið að í mörg ár, en vonandi gengur það betur næsta sumar.

Pólitík og Mosfellsbær

41. landsfundur var haldinn á árinu og var kosin ný forysta. 

16349_10200169240647555_2075955687_n

 

 

 

 

 

 

 

Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Skuldaniðurfellingar og nýkynnt fjárlög hafa mögulega létt róðurinn hjá einhverjum en höfum við ekki mikið orðið þess vör hér á þessum bæ og erum ekkert himinsæl með að þurfa að greiða tugþúsundir fyrir sykurskýkilyf Ella svo eitthvað sé nefnt. Sorglegast er hvað margir eru fluttir og við það að flytja til útlanda og vonar maður að sú þróun fari að snúast við.

Framundan eru sveitastjórnarkosningar og eftir að hafa tekið þátt í þeim sem frambjóðandi í fjögur skipti verður örugglega sérkennilegt að taka þátt á hliðarlínunni.

Áfram fjölgar í Mosfellsbænumog erum við komin yfir 9000. Á árinu bættist við bæði hjúkrunarheimili og nýr framhaldsskóli og má segja að við séum orðin nokkuð sjálfbær. Í lok árs var upplýst um niðurstöður hinnar árlegu hvar er best að búa Gallupkönnunar og eftir að hafa vermt efstu sætir í nokkur ár varð Mosfellsbær í fyrsta sæti, sem var ánægjulegt, enda frábært að búa í Mosfellsbæ.

Kaleo úr Mosfellsbænum markaði heldur betur sín spor á árinu með lögunum Vori í Vaglaskógi og Automobile sem endaði á toppnum í lok árs. Flottir strákarnir okkar!!

Gleðilegt ár kæru vinir

Við Rituhöfðafjölskyldan á fjögur enduðum árið á því að styrkja Björgunarsveitina okkar og vonum að þið gerið það sama. Við vitum jú aldrei hvenær við þurfum á hjálp þeirra að halda eins og svo oft hefur sýnt sig í vonda veðrinu í vetur.

Enduðum við árið 2013 á því að kaupa Nissan Leaf rafmagnsbíl og ætlum því að vera græn og sérlega glöð á nýja árinu.

Kærar þakkir fyrir fyrir samverustundir á liðnu ári og vonumst við til að hitta ykkur hress og kát á hinu frábæra ári 2014.

DSC08686

 


Gleðileg jól, Merry Christmas, Frohe Weihnachten, Gleðilig jól, Hyvää joulua, Joyeux Noël, Buon Natale, Glædelig jul, Feliz Navidad, God jul

Gleðileg jól, Merry Christmas, Frohe Weihnachten, Gleðilig jól, Hyvää joulua, Joyeux Noël, ãƒ¡ãƒªãƒ¼ãƒ»ã‚¯ãƒªã‚¹ãƒžã‚¹Buon Natale, Καλά Χριστούγεννα, Glædelig jul, Feliz Navidad, God jul *¨*.¸¸

Gleðileg jól kæru vinir nær og fjær. Guð gefi ykkur og fjölskyldum ykkar gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár. Kærar þakkir fyrir góðar samverustundir á árinu sem er að líða. Annáll Rituhöfðaliðsins verður settur inn um áramótin.

Merry Christmas and happy new year dear friends and family. May the holidays refresh your spirit and bring you new inspiration and happiness.

mamma og litla með jolasveininum

 

 

 

 

 

 

 

 

DSC08533

 

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Ár frá því ég ákvað að hætta í bæjarstjórn Mosfellsbæjar

Síðasti bæjarstjórnarfundurinn

Ég var að átta mig á því að fyrir rétt um ári síðan var ég á leið í vinnuna hjá VSÓ Ráðgjöf þegar sú hugsun læddist að mér að það væri kominn tími til að hætta í bæjarstjórninni í Mosfellsbæ. Um kvöldið vorum við samstarfsfélagarnir að fara í vinnuferð og var ég búin að upplýsa um ákvörðun mína áður en dagurinn var liðinn. 

Á þessum tíma frá því að ég ákvað að hætta hafa óteljandi margir spurt mig hvort ég hafi séð eftir þessari ákvörðun, hvort ég sakni þessa ekki óskaplega og hvort það hafi ekki skapast mikið tómarúm. 

Stutta svarið við þessu er nei. Án hroka og alls yfirlætis. Ég held að þetta hafi einfaldlega verið frábær ákvörðun og fullkomin tímasetning. Ég les ekki fundargerðir og skanna ekki það sem verið er að gera til að tryggja að "blessuð bæjarstjórnin klúðri þessu nú ekki". Þarna starfar frábært fólk og maður kemur í manns stað.

Ég get þó sagt að ég sakna samstarfsfólksins, félaganna og sérlega bæjarráðsheimsóknanna í stofnanir bæjarins. Þegar maður hitti starfsmenn og fékk að heyra þeirra sýn á þróun mála, samstarf og framtíðina. Það er dýrmætt og skapar nauðsynlega tengingu milli kjörinna fulltrúa og starfsmanna. Ekki það að ég sé hætt að fara í skólana, bókasafnið og bæjarskrifstofurnar, en samt!

Árið 1998 var ég fyrst kjörin í bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var því búin að stja í fjórtán og hálft ár. Ég var búin að sinna flestum þeim embættum í bænum, með mikilli ánægju og lagði mig töluvert fram við að hafa gott samráð við íbúa og starfsmenn. En eins og flestir kjörnir bæjarfulltrúar, var ég einnig í annarri vinnu og síðar í háskólanámi samhliða. Fyrstu fjögur árin vorum við í minnihluta sem var ágæt reynsla, en árið 2002 kom Ragnheiður Ríkharðsdóttir inn og unnum við góðan sigur og fengum meirihluta bæjarfulltrúa. Árið 2006 fórum við í samstarf við Vinstri græn í Mosfellsbæ, samstarf sem hélt áfram árið 2010, þrátt fyrir að við Sjálfstæðismenn hefðum fengið meirihluta bæjarfulltrúa aftur.

Hér er fréttin sem birtist í Mosfellingi um ákvörðun mína að hætta. Mun hætta í bæjarstjórninni og um áramótin og helga líf mitt hamfaramálum

Að taka þátt í bæjarmálum er eitthvað sem ég ráðlegg öllum sem vilja hafa áhrif á samfélagið sitt að gera. Ég er langskólagengin, en segi samt að stjórnmálaþátttaka er besti skóli sem hægt er að hugsa sér. Næstu sveitarstjórnarkosningar munu fara fram í maí 2014. Í næstu kosningum verður bæjarfulltrúum í Mosfellsbæ einnig fjölgað úr 7 í 9 vegna mikillar fjölgunar í bæjarfélaginu og fá því fleiri tækifæri.

Mitt ráð til ykkar hvar í flokki sem þið standið er að ef það blundar í ykkur að bjóða ykkur fram skora ég á ykkur að gera það. Þannig getið þið haft bein áhrif og látið gott af ykkur leiða í samfélaginu. Ekki láta nægja að hugsa að hinir sjái um þetta stjórnmálastúss, ykkar tími er kominn!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband