Sigurjón Jóhannsson - minningarorð

Sigurjon_mbl_

Kallið er komið, komin er nú stundin og margs að minnast.

Þvílíkur fróðleiksbrunnur sem hann pabbi minn var, hálfgerð alfræðiorðabók og var maður alltaf ríkari eftir samræður við hann.  Frá því að ég var lítil stelpa naut ég frásagna úr Haganesvíkinni, af prakkarastrikum, skotveiði og rollurækt þeirra Steina. Af ævintýralegum veiðum í ísnum við Grænland, mannbjörg skipsfélaga af Fylki svo eitthvað sé nefnt. Lengi vel hélt ég að þetta væri eitthvað fært í stílinn, en eftir því sem ég eldist hef ég lært að trúlega hefur hann heldur dregið úr en hitt.

Á liðnum árum hef ég nýtt tímann okkar vel og drukkið í mig sögur og skráð, enda áhugasviðin lík. Minnist ég páskanna sem fóru í heimildaleit um ævi Herdísar ömmu, gleðinnar þegar við fundum vesturfaralegginn okkar og ógleymanlegri heimsókn til Kanada í fyrra. Gullbrúðkaupsferðarinnar á Strandirnar á vit forfeðra okkar galdramannanna. Síðustu sögustundirnar áttum við í byrjun desember og nú er það okkar hinna halda þeim á lofti. 

Pabbi byrjaði til sjós 15 ára gamall og hafa margir verið með honum til sjós á þeim 45 árum sem hann stundaði sjóinn. Margir af fyrrum skipsfélögum voru honum kærir og héldu tryggð við sinn gamla skipstjóra. Hann hafði oft orð á því hvað hann var lánsamur að missa aldrei mann. Við samantekt mína síðasta sumar kom í ljós að hann hafði tekið þátt í björgun 47 manna, en hann var ekkert að auglýsa það frekar en önnur afrek.

Pabbi var alltaf jafn mikill keppnismaður og áhugsamur um það sem hann tók sér fyrir hendur. Skotveiði, Ella til mikillar ánægju, silungsveiði og kartöfluræktin fræga. Ég vissi það alveg þegar hann sagði í vor að hann myndi taka kartöflurnar upp sjálfur haust, að svoleiðis yrði það. Restina af uppskerunni borðuðum við á litlu jólunum fyrir tveimur vikum síðan. 

Pabbi leit á alla hluti sem verkefni og ekki síst hindranir líkt veikindi. Hann tók því sem að höndum bar með æðruleysi, en alltaf ætlaði hann þó að sigra. Hann var í góðu líkamlegu formi og oftast heilsuhraustur, en verst þótti honum þegar augnbotnarnir fóru að bila. En skotaugað var þó betra, sem var þó stór plús í hans huga.

Krabbameinið var annað verkefni sem hann sigraðist á fyrir 6 árum síðan. Ég var svo með honum í vor þegar hann fékk fréttir um nýtt mein. Þá kom karakter hans vel í ljós. Læknirinn sagði líka að í þetta sinn yrðu krabbinn og hann trúlega að læra að búa saman, að búa með fjandvini sagði pabbi alltaf. Hann leit lækninn beint í augun og tók hann aðeins örskamma stund að sannfæra doktorinn um að meðferð væri það rétta í stöðunni.Sem varð. Svo sagði læknirinn „já ég sé núna að þú ert ekki orðinn áttræður." Á leiðinni heim ræddum við veikindin og fór hann yfir hvað hann var sáttur við lífsstarfið og ekki síst fjársjóðinn sinn, fjölskylduna sem var honum allt og þurfti ekki blóðskyldleika til að hljóta fjölskyldustatus í hans hjarta.

Í þetta sinn sigraði pabbi ekki og er hann nú lagður upp í sína hinstu sjóferð

Takk fyrir allt og allt pabbi minn. Minning þín mun lifa um ókomna tíð.

Herdís Sigurjónsdóttir

Sildin_siglo_2010 174

 

 

 

 

 

 

 

 

pabbi i skurdi 

 

Minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu útfarardaginn, 30. desember 2010


íbúafundur um fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2011

Hafin er vinna við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011 í Mosfellsbæ og líkt og í flestum sveitarfélögum í landinu verður þetta erfiður róður. 

Í fyrra óskuðum við eftir tillögum frá íbúum á heimasíðu okkar og voru starfsmenn einnig hvattir til að koma með sparnaðartillögur. Á heimasíðu bæjarins mos.is er hægt að senda inn hugmyndir um hagræðingu fyrir fjárhagsárið 2011. Hér er hægt að senda inn tillögu.

í ár ætlum við einnig að boða til íbúafundar um fjárhagsáætlunina. Fundurinn verður haldinn í Hlégarði þriðjudagskvöldið 26. október kl. 20-21.30 og vona ég að sem flestir mæti. Markmið fundarins er að fá umræðu meðal íbúa um leiðir til hagræðingar í rekstri Mosfellsbæjar á næsta ári og hugmyndir sem nýst geta við fjárhagsáætlunargerðina.

Framundan er krefjandi verkefni sem bæjaryfirvöld óska eftir samvinnu við bæjarbúa um. Ljóst er að í því umhverfi sem við búum nú í þarf að hagræða enn frekar í rekstri sveitarfélagsins. Við óskum eftir að heyra raddir íbúa um hvar þeim finnist að megi hagræða og hvar ekki.
Að fundinum loknum verða niðurstöður umræðuhópanna dregnar saman og birtar á vef Mosfellsbæjar, www.mos.is

Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að í upphafi verður hálftíma kynning á starfsemi Mosfellsbæjar, verkefnum sveitarfélagsins og forsendum fjárhagsáætlunarinnar. Þá verða spurningar úr sal og loks verður fundarmönnum skipt í hópa þar sem lagðar verða fram tvær spurningar: Hvar má spara og hvar má ekki spara?

Nánar um íbúafundinn.

Hér má nálgast ársreikninga, fjárhagsáætlanir og þriggja ára áætlanir sem fólk getur kynnt sér fyrir fundinn.

Ég hvet íbúa Mosfellsbæjar til að fjölmenna á íbúafundinn og þá sem ekki komast til að senda inn tillögur og taka þátt í þessu krefjandi verkefni með okkur.


Leikhúsið við Austurvöll

Ég hef verið mjög hugsi yfir ástandinu að undanförnu og sé ekki annað en að þjóðarskútan sigli um stjórnlaus, í það minnsta án siglingartækja.

Við sveitarstjórnarmenn ræddum okkar mál á þingi sambandsins í síðustu viku, sem er fyrsta þing eftir sveitarstjórnarkosningar. Við ræddum ástandið í samfélaginu og tækifæri og var yfirskrift þingsins Nýtt umhverfi - Ný úrlausnarefni - Ný tækifæri. Frekar jákvætt, en við gerum okkur samt öll grein fyrir því að árið 2011 verði það erfiðasta í rekstri sveitarfélaganna í langan tíma. Í Mosfellsbænum bundum við vonir við að árið 2011 værum við farin að sjá til sólar, en því miður ætlar það ekki að ganga eftir og nokkuð ljóst að fjárhagsáætlunargerðin verður erfið.

Á sambandsþinginu kom fram hjá einum þingfulltrúa að sveitarfélögin ættu að taka að sér vinnu Alþingis. Einnig kom fram að við værum komin mun lengra í endurreisnarvinnunni en Alþingi og værum fyrir löngu farin að vinna á meðan enn væri verið að karpa um leiðir og unnið gegn uppbyggingu í atvinnumálum, sem væri forsenda endurrisnar. Sorglegt en satt.

Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í borginni var með framsögu á þinginu. Frábær stjórnmálamaður þar á ferð. Í þessum framsögum sínum ræddi hún m.a. þjónustu við íbúa á erfiðum tímum og leit að lausnum. Ferskur blær um mikilvægi samstöðu pólitíkusa og samvinna við embættismenn og íbúa. Þar sem vikið er frá hefðbundnum leiðum, stokkað upp á nýtt og horft fram hjá því hver átti hugmyndina, sem hefur verið ríkjandi í stjórnmálum. 

Samstaða og samstarf allra flokka er ekki algilt hjá sveitarfélögum, en er sem betur fer hjá okkur hér í Mosfellsbænum. Höfum við unnið sem einn maður að fjárhagsáætlunargerðinni undanfarin tvö ár. Ég vona að svo verði áfram og veit að fenginni reynslu hvað það skiptir miklu máli. Þá er ég ekki að segja að bæjarráðið hafi verið sammála um leiðir og nálgun í upphafi, en við ræddum okkur niður á niðurstöðuna í samvinnu við íbúa og starfsmenn. Hafa fjölmargir starfsmenn komið að máli við mig og sagt hvað þetta auðveldi vinnuna á þessum erfiðu tímum, sem gerir mann enn einbeittari í því að ná samstöðu.

En hvað með Alþingi? Hvert er verið að stefna þar? Við Sædís Erla sem er nýorðin 7 ára lágum saman í gær og vorum að lesa undir útsendingu frá Alþingi og mótmælum á Austurvelli. Sædís varð ánægðust með að sjá ömmu Haddý bregða fyrir annað slagið á skjánum, eða Ragnheiði Ríkharðs sem er amma hálfrar sveitarinnar. Hún var ekkert að spá í mótmælin og var ég ekki að ræða þau neitt sérstaklega. Svo áttaði ég mig á því þegar hún sá forsíðuna á mogganum í morgun að hún hélt að Alþingi væri leikhús og mótmælin væru partur af sýningunni. Það segir kannski sitt um ástandið.

Það liggur eitthvað í loftinu og nokkuð ljóst að þrátt fyrir að fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna hafi skipt um skoðun á ástæðu þess að fólk flykkist á Austurvöll til að mótmæla. Viðsnúninginn má sjá og heyra í þessari frétt,  Þetta gengur ekki lengur svona.  Meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir hefur áttað sig á þessu, en eftir mótmælin sagði hún að nú sé mikilvægt að taka höndum saman og finna lausnir fyrir fólkið. Þó fyrr hefði verið segi ég!

Ég er hrædd um að það sé mögulega of seint fyrir samstöðustjórn eða Þjóðstjórn og svo hefur mér líka sýnst lítill áhugi á aðkomu stjórnarandstöðunnar. Mikið vildi ég að Alþingi hefði tekið starfshætti okkar sveitarstjórnarmanna sem viljum samstöðu til fyrirmyndar. Það vita það allir að stjórnarandstaðan hefur boðið samstarf við að koma heimilunum í landinu í var, boð sem ekki var þegið. Skjaldborg hvað!

Eitt er ljóst í mínum huga að hvort sem samstaða næst um leiðir nú, eða boðað verður til kosninga verður að ná stjórn á þjóðarskútunni.  


mbl.is Ekkert boð komið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar mamma var í blómastríði við rollur á Siglufirði í denn

IMG_8409

Áðan var ég að lesa grein um rollur á Hvanneyrarbrautunni á sksiglo.is síðunni um rollubúskap á Siglufirði og velti fyrir mér af hverju búið sé að leyfa rollubeit aftur í firðinum mínum fagra. Ég man ósköp vel eftir stríðsástandinu á Laugarveginum í denn og reyndar um allan bæ. Þegar rollur og garðaeigendur voru í stríði dag og nótt.

Mamma og Steinar á Höfninni "handtóku" einu sinni rollur sem höfðu étið garðablómin þeirra. Steinar hafði þá gleymt í svipinn að útsæðið hans var á gólfinu og VAR átti vel við því það var náttúrulega allt horfið þegar hann áttaði sig. Einu sinni fór líka rolla í gegnum glerið á gróðurhúsinu hjá mömmu.

Það hefur trúlega verið Túlípana Móra sem var búin að koma sér upp tækni við að komast inn í garðinn hjá mömmu. Hún tók tilhlaup á eina tiltekna þúfu og sveif yfir girðinguna. Inn í blómaríki Ásdísar sem hefur örugglega verið paradís á jörðu fyrir rolluna. Einu sinni teymdi mamma rolluna eitthvað suðureftir eitt kvöldið og hélt að þar með gæti hún farið að sofa. Hún stoppaði í útidyrunum fyrir neðan húsið í yndislegu sumarveðri og sá þá hvar rollan kíkti fyrir hornið hjá Hannesi Bald í Hafnartúninu og vissi greinilega alveg upp á sig sökina. Það þarf vart að nefna það að mamma var á vaktina alla nóttina.

Hún mamma mín sem er mikil blómakona var algjörlega búin að fá yfir sig nóg af þessu rollustríði. Hún var búin að koma sér upp alls konar tækni til að vernda blómin.  Hún setti til að mynda þvottabala yfir túlípanana eitt sinn og fór í sunnudagsgöngutúr. Þegar hún kom til baka voru þeir allir horfnir og bara berir stilkar eftir. Mamma var meira að segja komin með pappírana og ætlaði að fá sér byssuleyfi.. sem segir nú sitt um ástandið sem var á Siglufirði á þessum tíma.

Nú er sem sé búið að leyfa rolluhald á Sigló aftur. Ég hef ekki kynnt mér hvort hugmyndin var að minnka hirðu snjóflóðavarnargarðanna flottu eða hvort hobbíbændur hafa sótt í það að fara af stað. 

Ég veit bara að girðingar eru fæstar rolluheldar lengur og fæ því ekki sæluhroll fyrir hönd garðaeigenda yfir þessari nýju stöðu svo mikið er víst.


Andlegur stuðningur við eldamennskuna

Ásdís og Sturla  1

Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar er haldinn hátíðlegur í dag og var ég að koma af hátíðardagskrá sem haldin var í Hlégarði af því tilefni.

Yfirskrift dagsins í dag var „Ungt fólk og jafnrétti” og var dagskráin að mestu leyti borin uppi af unglingum úr félagsmiðstöðinni Bólinu og nemendum í Framhaldsskóla Mosfellsbæjar sem voru einu orði sagt frábær. Einnig var veitt jafnréttisviðurkenning Mosfellsbæjar 2010 og hlaut vinnustaðurinn Ásgarður verðlaunin þetta árið og er vel að þeim kominn.

DSC07625

Þeir Gauti og Dagur frá Bólráðinu kynntu niðurstöður jafnréttiskönnunar. Sögðu þeir að ætlunin væri að nýta hana til að bæta jafnrétti í félagsmiðstöðinni Bólinu, sem væri þó gott, en alltaf væri hægt að bæta. Nafnið á félagsmiðstöðinni kom sérlega skemmtilega út í þessum spurningum eins og t.d. "Af hverju ferðu ekki í Bólið á kvöldin?"

DSC07639

Bæði Bólið og F-Mos sýndu skemmtileg myndbönd þar sem ýmsir voru spurðir út í það hvað þau teldu jafnrétti vera. Svörin voru mjög mismunandi og sem dæmi töluðu margir um jafnrétti kynjanna, launajafnrétti, að allir megi vera með, að enginn megi hafa meira gaman en aðrir, að vera með jafn stóra matarskammta fyrir stelpur og stráka sagði Ásdís Magnea sem hefur sterka réttlætiskennd eins og mamma hennar. Þetta varð eiginlega svona fjölskyldumyndband því þegar strákarnir voru að taka þetta upp hittu þeir okkur Ella fyrir utan Krónuna, Ásdís Magneu í sjoppunni og tengdó, Sigga mág í fiskbúðinni. 

Mér fannst líka áhugaverð svörin við spurningunni hvort jafnrétti ríkti á Íslandi. Jú flestir voru nú á því og einn viðmælandinn sagði m.a. að konur hefðu alltaf séð um að þrífa og elda, en nú væri það ekki svoleiðis lengur. Sem betur fer segi ég nú bara! Það er samt ótrúlega stutt síðan þetta fór að breytast og dettur mér alltaf í hug vinnufélagi Ella sem var alveg hissa á því þegar við eignuðumst frumburðinn fyrir 18 árum síðan og Elli ætlaði að vera heima hjá henni veikri. Honum varð að orði "bíddu ertu ekki giftur?".

DSC07642

Tvær stelpur úr F-Mos sem ég náði því miður ekki niður hvað heita voru með flotta framsögu og marga áhugaverða punkta um jafnrétti. Þær ræddu m.a. að ekkert væri sem tengdi kyn og dugnað, ræddu kvennaríki í kennarastétt, kvenna og karlastörf og enduðu á að sýna myndband VR frá 2005 þar sem farið var yfir nokkrar staðreyndir um ákjósanlegt útlit og kyn m.t.t. launamála.

  • Vertu dökkhærð, því dökkhærðir eru með hærri laun en ljóshærðir.
  • Vertu karlmaður, því karlar fá að jafnaði 20% hærri laun en konur fyrir sömu störf og eru líka mun líklegri að komast í stjórnunarstöður.
  • Vertu hávaxinnm því ef þú ert yfir 179 cm færðu hærri laun og frekar óheppinn ef þú ert lágvaxnari en 166 cm.

Eftir auglýsinguna fór ég yfir listann í huganum og þakka í það minnsta fyrir að vera dökkhærð.

DSC07644

Þá var komið að frábæru atriði frá leiklistarhópi F-Mos sem var með frásögn af ömmum sínum og öfum. Þau lýstu þeim skemmtilega og einlægt. Einn lýsti ömmum sínum sem hann hafði búið hjá. Töluverður aldursmunur var á þeim og sú eldri dekraði hann og þreif og eldaði á meðan sú yngri lét hann sjá um sig sjálfan og meira að segja sturta niður. Hann endaði á því að tala um að hann vildi ekki einu sinni tala um hvernig mamma hans væri í þessu efnum og skildi ég hann sem svo að ekki væri mikil þjónusta á þeim bænum. Ég er líka nokkuð viss um að ég tilheyri hennar flokki. Flest lýstu þau yndislegum bakandi og prjónandi ömmum, sem margar unnu úti með heimilinu og útivinnandi öfum, sem fengu góða umönnun og mikinn skilning heimavið. Mér fannst alveg yndislegt sem einn sagði, en hann talaði um að amman eldaði, en afinn veitti henni í mesta lagi andlegan stuðning við eldamennskuna.

DSC07651

Dagskráin endaði á ljúfum tónum um 20 ungmenna í skapandi tónlist í F-Mos sem fluttu frumsamda tónlist sem þau nefndu Feimna tóna og gerðu það glæsilega.

Þegar ég gekk út út Hlégarði var ég full bjartsýni um aukið jafnrétti og vona bara að þegar barnabörnin mín, hún Herdís litla eða Elli (engin pressa á börnin he he) fara í leiklist í framhaldsskóla Mosfellsbæjar og standa á sviðinu í Hégarði og segja frá ömmu Herdísi og afa Ella segi þau. "Afi og amma sátu bæði í jafnréttisnefnd í Mosfellsbæ, já hugsið ykkur bara í gamla daga voru til sérstakar jafnréttisnefndir! En amma eldar nú samt líka".

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband