Hin mosfellska Gildra

Þegar ég flutti í Mosfellsbæ vissi ég af hljómsveitinni Gildrunni sem Mosfellingar voru eðli málsins samkvæmt stoltir af, enda mosfellsk og ein helsta rokkhljómsveit landsins. Elli hafði eitthvað verið að plokka bassa með hluta þeirra um árið og því hafði hann sérstakar taugar til grúppunnar.

gildran_i_10_ar

Hljómsveitina Gildruna skipa þeir Birgir Haraldsson söngvari, Þórhallur Árnason bassaleikari, Karl Tómasson vinur minn trommari og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari. Einnig spilar Vignir Þór Stefánsson með þeim á hljómborð.

Mér hefur alltaf fundist þeir frábærir, með sinn skemmtilega tón og Biggi náttúrulega með sína ótrúlegu rödd og kraft og er Vorkvöld í Reykjavík eitt af mínum uppáhalds. Gildru-Mess tímabilið var líka skemmtilegt með öllum Creedence Clarwater Revial lögunum. 

Ég fór á afar eftirminnilega tónleika með þeim í Hlégarði í maí í fyrra, sem þeir héldu til að fagna 30 ára samstarfi. Þvílíka stuðið og enduðu margir uppi á borði að dansa og þar á meðal ég.  Þetta myndband var tekið upp á tónleikum og langar mig til að leyfa ykkur sem ekki voruð á staðnum að njóta þess. http://youtu.be/OKfSxYuMS8Q

Það er óhætt að fagna því að þeir séu farnir að spila aftur og hver veit... ég sá ég að þeir verða á SPOT í Kópavogi í kvöld.

Myndin hér að ofan var tekin þegar þeir fögnuðu 10 ára starfsafmæli og fékk ég hana lánaða hjá Kalla Tomm.


Nýsköpunarverðlaun á sviði almannavarna og öryggismála

SIS_Stjornsysla_sveitarfel_190x160

Nýsköpunarverðlaun í opinberum rekstri voru í fyrsta skipti veitt í dag. Að verðlaununum stóðu fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það gladdi mig mjög að sjá að bæði Almannavarnanefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fengu nýsköpunarverðlaun, að öðrum vinningshöfum ólöstuðum. Það veit á gott

Nýsköpunarverðlaunin 2011 hlaut lögreglustjórinn á Hvolsvelli og almannavarnanefndin fyrir verkefnið Skipulag rýminga vegna jökulhlaupa sem fylgja eldgosum í Kötlu og Eyjafjallajökli. Alls bárust 40 tilnefningar til verðlauna og voru 18 verkefni valin í úrslit og voru þrjú verkefni frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu; Breytt skipulag löggæslu á höfuðborgarsvæðinu, Virkir brotamenn - eftirlit með síbrotamönnum og aðgerðir til að draga úr hegningarlagabrotum og Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu.

Verðlaunin vegna Kötluáætlunarinnar eru verðskulduð að mínu mati. Ég gleymi því örugglega aldrei þegar ég var stödd á blaðamannafundi eftir að eldgosið hófst á Fimmvörðuhálsi, vansvefta eftir næturvinnu með Rauða krossinum. Rýming næturinnar gekk vel og sat Kjartan lögreglustjóri fyrir miðju, pollrólegur og sagði... "Í síðustu viku héldum við íbúafund og fórum yfir rýmingaráætlunina". Ég man vel að þá hugsaði ég. Ætli þetta hefði gengið jafn vel í nótt ef ekki hefði verið búið að vinna þessa vinnu.

Í desember árið 2002 óskaði almannavarnanefndin með Kjartan Þorkelssoní fararbroddi, eftir því við Almannavarnir ríkisins (nú almannavarnadeild ríkislögreglustjóra) að unnið yrði hættumat og áhættugreining gerð á svæðinu. Ríkisstjórnin veitti aukafjárveitingu til verksins. Á grundvelli hættumatsins sem gefið var út á miðju ári 2005 var viðbragðsáætlun unnin og hún æfð stórri vettvangsæfingu sem kölluð var Bergrisinn 2006. Ég tók þátt í þessari æfingu bæði sem fulltrúi í Samhæfingarstöð almannavarna og einnig bakskipulagi sem stýrði æfingunni. Viðbragðsáætlunin hefur markvisst verið kynnt íbúum, sem margir hverjir hafa hlutverk í rýmingaráætluninni.

Forsvarsmenn almannavarna um allt land ættu að taka sér þessa vinnu kollega sinna sér til fyrirmyndar. Það er mikilvægt að hafa klára áætlun um hver gerir hvað á neyðartímum og hefur Kötluáætlunin þegar sýnt að hún virkaði þegar á reyndi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk verðlaun fyrir verkefni sitt Notkun samfélagsmiðla (Facebook og Twitter) á sviði löggæslu. Frábært verkefni og góð leið til að koma skilaboðum á framfæri með skjótum hætti og jafnframt til unga fólksins sem að öllu jöfnu er lítið að glugga í blöð eða hlusta á fréttir. Tenglar á lögregluna á samfélagsmiðlunum eru www.facebook.com/logreglan og www.twitter.com/logreglan.

Að mínu mati hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með störfum Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra frá því að hann hóf störf. Hann hefur verið óhræddur við að fara nýjar leiðir og er búinn að endurskipuleggja embættið með það að markmiði að skila betri árangri í löggæslu og jafnframt auka sýnileika, þrátt fyrir minn rekstrarframlag til embættisins. Ég tel það hafa tekist og bíð spennt eftir nýrri lögreglustöð í Mosfellsbæ sem á að rísa við Skarhólabrautina.

Upplýsingagjöf til íbúa skiptir miklu máli og hefur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tekist vel upp í þeim efnum, bæði hvað varðar samvinnu við íbúa og gagnvirka upplýsingagjöf við borgarana.

Húrra fyrir ykkur öllum og hjartanlega til hamingju með verðlaunin.


mbl.is Rýmingaráætlun fékk nýsköpunarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk spilling í Mosfellsbæ?

Var að hlusta á 566. fund bæjarstjórnar frá því í síðustu viku sem ég gat ekki setið vegna vinnu erlendis og á ekki til eitt einasta orð yfir málflutningi. Ég hvet fólk til að hlusta á fundinn þrátt fyrir að hljóðgæði séu ekki upp á það besta. Hér er hægt að lesa fundargerð og hlusta á fundinn.

Málið sem um var rætt var Umgengni gagna í vörslu Mosfellsbæjar. Borin var upp tillaga á 1046. fundi bæjarráðs, en var henni vísað til dagskrár 566. fundar bæjarstjórnar þar sem afgreiðsla tillögunnar var ekki samhljóða í bæjarráði.

Tillagan var svohljóðandi:

"Bæjarstjórn óskar eftir því við lögmenn bæjarins að fram fari lögfræðileg skoðun á því hvort brotið hafi verið gegn reglum Mosfellsbæjar um meðferð mála, ákvæðum sveitarstjórnarlaga og ákvæðum annarra laga sem kveða á um vernd persónuupplýsinga þegar Íbúahreyfingin birti upplýsingar um afskriftir til lögaðila í Mosfellsbæ í dreifibréfi til íbúa Mosfellsbæjar í september sl."

Á bæjarstjórnarfundum sem ég var að hlusta á sagði Jón Jósef Bjarnason fulltrúi Íbúahreyfingarinnar m.a. að ég sem formaður bæjarráðs hafi brotið á honum og þekki ekki samþykktir bæjarins. Greinin sem hann vísar í er 47. gr. samþykkta Mosfellsbæjar þar sem segir m.a.

"Heimilt er að taka erindi til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks erindis ef einhver bæjarráðsmanna eða áheyrnarfulltrúi óskar þess".

Í því sambandi vil ég koma eftirfarandi staðreyndum á framfæri:

1) Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar las greinilega ekki rafræna fundarboðið þar fram kom að ætlunin væri að ræða málið og því hefði það ekki átt að koma honum á óvart. 
2) Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar bað um að fresta því að málið væri sett Á DAGSKRÁ. Tillaga formanns um að taka málið á dagskrá var samþykkt með 2 atkvæðum. Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar greiddi ekki atkvæð á móti heldur sat hjá.
3) Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar bað ekki um að AFGREIÐSLU MÁLSINS yrði frestað. Ég vek athygli á því að samþykktin tekur til frestunar á afgreiðslu erinda sem eru teknir á dagskrá á fundinum.

Hvað varðar annað sem hann heldur fram þarna í málin hans og bókun um pólitíska spillingu, ákvarðanatökufælni annarra bæjarfulltrúa en hans sjálfs og annað sem ég ætla ekki að hafa eftir og vísa því út í hafsauga. Ástæða þess að málið var tekið á dagskrá var sú að kanna hvort farið væri að lögum hvað varðar meðferð gagna vegna þess að ég og fleiri efuðust um það. Ég bíð með að tjá mig um það frekar uns lögfræðileg skoðun liggur fyrir.

Tillagan var þá borin upp á bæjarstjórnarfundinum:

"Bæjarstjórn óskar eftir því við lögmenn bæjarins að fram fari lögfræðileg skoðun á því hvort brotið hafi verið gegn reglum Mosfellsbæjar um meðferð mála, ákvæðum sveitarstjórnarlaga og ákvæðum annarra laga sem kveða á um vernd persónuupplýsinga þegar Íbúahreyfingin birti upplýsingar um afskriftir til lögaðila í Mosfellsbæ í dreifibréfi til íbúa Mosfellsbæjar í september sl."

Þetta var bókað við afgreiðslu málsins:

Bókun bæjarfulltrúa D lista og lista Vinstri grænna:
"Við vísum fullyrðingum og dylgjum í bókun Íbúahreyfingarinnar alfarið á bug, þær dæma sig sjálfar.  Þetta mál snýst um hvort bæjarfulltrúar fari eftir þeim lögum og reglum sem þeir hafa undirgengist varðandi stjórnsýslu Mosfellsbæjar."
 
Bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar Hönnu Bjartmars:
"Aðalatriðið er að farið sé að lögum við birtingu upplýsinga og er því mikilvægt að engin vafi leiki á hvort gögn  sem kjörnir fulltrúar fá í hendur séu trúnaðarmál eða ekki. Því er nauðsynlegt að þau gögn sem sett eru á fundargátt séu merkt hvað það varðar. Telji fundarmenn vafa leika á slíkri merkingu skjals þá sé afstaða tekin til þess á þeim fundi þar sem um málið er fjallað. Sé ágreiningur fyrir hendi er þá leitað úrskurðar í málinu."
 
Tillagan var borin upp til afgreiðslu:
 
Tillagan samþykkt með 6 atkvæðum gegn einu.

Jón Jósef Bjarnason bæjarfulltrúi Íbúahreyfingar bókar að ekki sé ástæða til að leita til lögfræðings þegar heilbrigð skynsemi nægir.


Lýðræðisstefna Mosfellsbæjar

Allar stjórnmálahreyfingar sem buðu fram í Mosfellsbæ 2010 lögðu áherslu á lýðræðismál og mikilvægi þess að  auka þátttöku bæjarbúa í ákvarðanatöku í málefnum bæjarins. Bæjarstjórn setti upp tímabundinn stýrihóp skipaðan fulltrúum allra stjórnmálaafla sem sæti eiga í bæjarstjórn til að móta drög að fyrstu lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar.

Íbúar hafa verið virkjaðir við mótun draganna með ýmsum hætti á vinnslutíma. Hópur íbúa var valinn með slembiúrtaki úr þjóðskrá til að taka þátt í vinnufundi um íbúalýðræði með þjóðfundarsniði. Á vef Mosfellsbæjar var opnað vefsvæði um íbúalýðræði og íbúar hvattir til að koma með ábendingar. Skoðanakönnun var send út rafrænt og haldinn var íbúafundur um íbúalýðræði sem tekinn var upp og gerður aðgengilegur á vef Mosfellsbæjar. Allar fundargerðir hópsins voru birtar jafnóðum á vefnum, niðurstöður könnunar og önnur gögn sem hópurinn var að vinna með.

Lýðræðisleg vinnubrögð snúast um að komast að niðurstöðu sem flestir geta unað við og höfðu allir fulltrúar jöfn tækifæri til að afla sínum skoðunum fylgis, enda vel við hæfi að samræða sé notuð og hugmyndum leyft að þróast þegar unnið er að gerð lýðræðisstefnu. Þegar drögin voru samþykkt til kynningar náðist því miður ekki eining í stýrihópnum og lagði fulltrúi Íbúahreyfingarinnar fram bókun varðandi tvær greinar stefnunnar.

Lýðræðisstefna Mosfellsbæjar verður ekki meitluð í stein og er mikilvægt að hún verði í stöðugri þróun í takti við samfélagið.  Næstu skref  eru því mjög mikilvæg. Með samþykkt lýðræðisstefnu í Evrópskri lýðræðisviku leggur Mosfellsbær af stað í vegferð þar sem aukið gegnsæi, þátttaka og samræða um málefni og ákvarðanir í nærumhverfi okkar eiga að verða sjálfsagður og eðlilegur þáttur í samskiptum bæjarbúa, kjörinna fulltrúa og starfsfólks bæjarins. Það er tilefni til bjartsýni að skoðanakönnun sýndi að  85% þeirra sem svöruðu hafa áhuga á að taka þátt í mótun samfélagsins og verður því að leita allra leiða til að ná til íbúanna með virkum hætti.

Að lokum  þökkum við þeim starfsmönnum sem unnið hafa með stýrihópnum og lagt  sig fram um að vinna vel og af trúmennsku að verkefninu. Síðast en ekki síst viljum við þakka þeim íbúum sem svöruðu kallinu og tóku þátt í mótun lýðræðisstefnunnar og hvetjum jafnframt Mosfellinga til að láta sig málin varða í framtíðinni.

Höfundar eru Anna Sigríður Guðnadóttir og Herdís Sigurjónsdóttir, fulltrúar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í stýrihópi um lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar

Greinin birtist í Mosfellingi, 11. tbl. 10. árg. 29. september 2011


Í túninu heima - bæjarhátíð Mosfellinga 25. - 28. ágúst

forsida

Bæjarhátíð okkar Mosfellinga, Í túninu heima, verður haldin í sjöunda sinn dagana 25.-28. ágúst n.k. Dagskráin hefur aldrei verið fjölbreyttari og skemmtilegri. Meðal nýjunga á hátíðinni í ár eru litboltavöllur og lazer-tag að Varmá auk þess sem stefnt er á að setja íslandsmet í planki á setningarhátíðinni á Miðbæjartorgi á föstudagskvöldið.

Hátíðin hefst á fimmtudagskvöld með tónlistardagskrá í Kaffi Álafossi og unglingadansleik í Hlégarði.

Brekkusöngurinn á föstudagskvöldinu er vinsæll og spila Hljómar og halda uppi stuði. Í fyrra var metþátttaka og hafði bleika hverfið sigur úr býtum í keppninni um bestu mætinguna.  Við gulu látum það ekki gerast aftur! Heyrst hafa raddir um að þegar sé farið að undirbúa í öðrum hverfum hvernig tryggja megi að bleikir nái ekki að verja titil sinn í ár. Karnivalskrúðgangan (þar sem gulir ætla að vera flestir) verður með ögn breyttu sniði í ár. Hverfin hittast hvert um sig og ganga að Miðbæjartorgi þar sem setningarhátíðin fer fram. Ný keppnisgrein bætist við í ár: skrautlegasta skrúðgangan. Frést hefur að þegar sé uppi áform um skreytta sviðsvagna, hljóðfæraleik, hverfislitar fígúrur og þvíumlíkt, svo mikill er keppnisandinn.

Á Miðbæjartorgi verður reynt verður við íslandsmet í planki. Þaðan ganga hverfin öll saman í Ullarnesbrekkurnar þar sem kveiktur verður varðeldur og sunginn brekkusöngur. Víst er að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni.

Hinir vinsælu útimarkaðir verða að vanda í Álafosskvos og Mosskógum í Mosfellsdal og er óhætt að mæla með fersku grænmeti og ýmsum öðrum varningi sem er þess virði að fá sér rúnt í Mosó. Sýningarbásar verða í Íþróttamiðstöðinni að Varmá og fjölbreytt dagskrá á inni- og útisvæði, tívolí verður við Hlégarðstún og sælkerahátíð í Hlégarði.

Bylgjan verður með beina útsendingu frá hátíðinni á laugardeginum kl. 12-16.

Hápunktur hátíðarinnar er að vanda á laugardagskvöld þegar útitónleikarnir fara fram á Miðbæjartorgi. Þar koma fram Sveppi og Villi, Hera Björk, Helgi Björns og Reiðmenn vindanna, Vinir Sjonna og hinn vinsæli Mosfellingur Steindi Jr. ásamt félögum.

Við Elli minn erum að fara í fertugsafmæli á laugardeginum hjá Huga vini okkar sem endar á stuðballi í íþróttahúsinu með Vinum Sjonna.

Nú er í fyrsta sinn boðið upp á aðstöðu fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla á nýju tjaldstæði sem tekið hefur verið í notkun við Varmárskóla. Ókeypis aðgangur verður að tjaldstæðinu á bæjarhátíðinni og geta Mosfellingar því hvatt vini og vandamenn nær og fjær til að sækja sig heim og upplifa þessa skemmtilegu hátíð með sér.

Verið velkomin í túnið heima Smile

IMG 2011 Sá guli við Rituhöfða 4... slakur að vanda.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband