Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Spennandi að sjá og heyra

Þetta er löngu tímabær breyting að mínu mati. Það gat verið ósköp langdregið að hlusta á þingmenn sem töluðu bara til að tala og virtist stundum sem fólk væri mest að ná sér í ræðutíma, ekki leggja eitthvað málefnalegt til umræðunnar. Ætli sé ekki best...

Meistaranám og ....

Ég er alveg sannfærð um að þetta verður gott ár, hlaupár, slétttöluár og svo gæti ég útskrifast í haust þó svo að takmarkið sé enn að útskrifast í febrúar 2009. Nú eru um tvö ár frá því að ég átti hið afdrifaríka símtal við Geir Oddsson, sem varð til...

Flott flugeldasýning og nýársbrenna í Mosfellsbænum

Við fórum á nýársbrennuna í Ullarnesbrekkunum áðan í yndislegu veðri. Það var mjög gaman og verð ég að segja að flugeldasýningin var glæst og var létt yfir fólki og greinilegt að árið 2008 leggst vel í fleiri en mig.

Gleðilegt ár - áramótaannáll 2007

Gleðilegt ár kæru vinir og fjölskylda og aðrir sem lesa þetta blogg. Áramótin voru róleg og yndisleg og fórum við Rituhöfðafjölskyldan bara fyrr að sofa en oft áður. Amma Binna kom og borðaði kalkún hjá okkur og var mikið skotið upp í Rituhöfðanum eins...

Að búa til hefð

Ekki var það nú sjósund sem Rituhöfðaliðið ætlar að stunda á gamlársdegi heldur humarsúpuboð fyrir fjölskylduna. Við þjófstörtuðum sem sé 2008, ári fjölskyldu og vina og héldum fjölskylduboð í dag, gamlársdag. Við burðum upp á humarsúpu a la Herdís og...

Styrkjum björgunarsveitirnar

Búið er að fara eina ferð til að kaupa flugelda af björgunarsveitinni okkar hérna í Mosfellsbænum Kyndli sem selur hér hjá okkur í vesturbænum, í Nóatúnshúsinu gamla og svo í þeirra eigin húsi uppi á melum. Úrvalið er gott eins og alltaf og verðum við...

Verkfræði á jólunum

Við mamma vorum að rannsaka geitungabú áðan... já við eigum nefnilega sameiginlegt áhugamál, sem er allt lifandi og reyndar líka dautt í þessu tilfelli. Síðasta sumar var nefnilega mikið fjör í gróðurhúsinu hjá mömmu, en kominn var lítill pappabolti með...

Gleðileg jól

Gleðileg jól og takk fyrir allt gamalt og gott. Við Rituhöfðafjölskyldan höfum það dásamlegt hjá ömmu og afa á Siglufirði. Við nutum þess að fara í kirkju í gær og koma svo heim og borða rjúpur og gæs og vera saman. Shirley nýjasti fjölskyldumeðlimurinn...

Litla jólabarn

Jæja jólin eru bara alveg að koma, merkilegt nokk. Allt er ljósum skreytt, jólakortin streyma inn um lúguna og inn í inn-boxið í tölvunni minni, en ég er samt ekki enn komin í þetta eiginlega jólastuð. Fólk spyr mig ... "ertu búin að öllu?".. Ég játa því...

Yndislegt líf hjá Rituhöfðafjölskyldunni

Við höfum það gott hér í kóngsins Köben. Það var bónus í gær að hitta Gumma Fylkis á vellinum, en hann var á heimleið sprækur eins og alltaf. Við erum alltaf að heyra í Sædísi Erlu og höfum það alltaf á tilfinningunni að hún sé með okkur, en við vitum að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband