Netlögga í bloggheimum

Fyrir viku síðan ákvað ég að stytta mér stundir í veikindaleyfi og blogga einu sinni á dag um eitthvað sem mér væri hugleikið þann daginn. Ég fór að hugsa um þennan bloggheim áðan þegar ég las bloggið hennar Önnu Kristjáns vélstýru og bloggvinkonu, sem skrifar skemmtilega pistla. Sá ég áðan að hún hafði fengið 77822 heimsóknir frá upphafi og þar af 10224 í vikunni. Ég hins vera er búin að fá 1265 í vikunni og 1940 frá upphafi á moggablogginu, en ég á líka mína föstu gesti á fjölskyldusíðunni þar sem allar myndirnar eru og ég hef haldið úti í nokkur ár.

Það er gaman að vafra um í bloggheimum og og "njósna" um fólk og veit ég ekki hvort það gerir mig að netlöggu og ef svo er þá er mér bara alveg sama. Það er líka gaman að skrifa og fá tækifæri til að deila hugrenningum sínum með fólki á blogginu og fá athugasemdir. Á þessari viku sem ég er búin að vera virkur bloggari er ég búin að skrifa um jafnréttismál,  leikskólamál í Mosfellsbæ og það að leikskólar í bænum eru opnir allan ársins hring, umhverfismál,  snjóflóð og snjóflóðavarnir sem voru mér hugleiknar eftir alla rýmingarumræðuna á Bolungarvík og síðast um ættleiðingar samkynhneigðra og fordóma. Það sem hefur komið mér mest á óvart er hvað fólk er lítið að skammast út í skrifin hjá mér. og átti ég allt eins von á því að ættleiðingarumræðan færi fyrir brjóstið á einhverjum. En viti menn, allir sammála mér og held ég kannski að það sýni hvað við erum að þroskast eins og Raggi Thor bloggvinur minn og Siglfirðingur sagði sjálfur í sínum athugasemdum.

Já talandi um bloggvini. Ég er búin að eignast fullt af nýjum bloggvinum og ætla ég að fjalla aðeins meira um þá. Ég skoða síður bloggvina vinna daglega og þeirra afkastamestu oft á dag (þið munið að ég er í veikindaleyfi). Á mobbablogginu les maður um daglegt líf fólks og um það sem er að gerast í þjóðfélaginu og hef séð á þessari viku margar ólíkar skoðanir og dóma falla. Umhverfismálin hafa fengið sína umfjöllun á blogginu og sitt sýnist hverjum í því sambandi. Nú ég skrifaði sjálf um umhverfismál og sagði að ég ætlaði að kynna mér sáttmála Framtíðarlandsins sem ég gerði og ákvað að skrifa ekki undir, enda eins og ég skrifaði í pistli mínum þá er þessi einmála umræða farin út í tóma vitleysu, þetta snýst ekki um að vera grænn eða grár, það er allt of mikil einföldun á málinu. Ég er sjálfsagt dökkgrænni en margir þeirra sem hafa skrifað undir, en vil líta á hlutina í samhengi og hefur það ekki verið gert í þessu máli að mínu mati. Nú nýr stjórnmálaflokkur, X-Í leit dagsins ljós. Þann daginn sá maður nú mest athugasemdir um hvað væri óeðlilegt að Margrét væri ekki formaður og áhyggjur af heilsufari Ómars, en ég get í sjálfu sér ekki sagt neitt frekar um málið því þetta var allt til bráðabirgða bæði  málefni  og stjórn og ekki búið að koma saman listum um landið, en aðeins einn og hálfur mánuður til kosninga.

Ég er búin finna fullt af fólki á blogginu sem ég hef kynnst á minni svo stuttu Whistling lífsleið, eins  Ippu (Vilborg Trausta) frá Sauðanesi við Siglufjörð, vinkonu stóru systur minnar sem setur ljóð daglega inn á bloggið sitt og nýt ég þess í botn að lesa þau og skemmtilegar frásagnir hennar, fósturson hennar Emil sem ég "heimsæki" á hverjum morgni,  Jónínu Ben sem  kenndi mér í Reykjaskóla um árið og rekur nú heilsuhótel í Póllandi og kann svo sannarlega að skrifa, Ómar skólabróðir minn frá Reykjaskóla sem nú er sveitarstjóri í Súðavík, hann Björn Ingi félagi minn í stjórn Sorpu skrifar góða pistla, enda reyndur blaðamaður þar á ferð og afkastamikill og svo eru miklu miklu fleiri sem ég verð að skrifa um seinna því annars verður þetta allt of langt.

Ég hef líka eignast bloggvini sem ég ekki þekki persónulega, en skrifa fróðlega og skemmtilega pistla og athugasemdir. Þar sló pistill Sigmars Guðmundssonar fréttamanns um samsettar fjölskyldur hláturmetið þessa vikuna, þið bara verðið að lesa hann. Margir sjálfstæðir menn og konur eru þarna á blogginu. Nokkuð hefur verið fjallað um skoðanakannanir um gengi stjórnmálaflokka og hef ég séð margar yfirlýsingar um það hvernig ríkisstjórnin eigi að vera samansett eftir 12. maí. Hann Stefán Friðrik Stefánsson frá Akureyri er oft með góðar pælingar og samantektir um pólitíkina og gerði þessa eftir síðustu Gallup könnun, þar sem hann tók saman það fólk sem færi inn á þing ef þessi skoðanakönnun gengi eftir. Þinglok, Evrópumál og Baugsmál hafa líka fengið mikla umfjöllun og klámumræðan og þótti mér bara ágætt spaugið hjá honum Gumma Braga, mínum fyrsta bloggvini og félaga þegar hann talaði um dónaskapinn hjá Rækka karlinum, hinum finnska formúlusnillingi þegar hann lét mynda sig við að borða frostpinna... Gummi velti því fyrir sér hvort ekki ætti að lögleiða það að bananar yrðu borðaðir þversum. ...já það er allt í lagi að grínast líka ..... því hláturinn lengir lífið LoL.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thelma Ásdísardóttir

Er sammála þér með hvað bloggheimur er skemmtilegur. Ég er sjálf alveg splunkuný á moggabloggi og er enn að kynnast öllu. En mér finnst þetta mjög skemmtilegt og góð leið til að tjá sig og sjá skoðanir annara. Það eru ekkert smá margir góðir pennar þarna úti!

Thelma Ásdísardóttir, 25.3.2007 kl. 13:03

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já Thelma, ég nýt þess í botn. Það gaman að gerast netlögga og vafra um og ekki síst þegar maður er rúmliggjandi og með flensu, ég vona að pensilínið sé farið að virka

Herdís Sigurjónsdóttir, 25.3.2007 kl. 13:15

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Takk fyrir að minna mig á að lesa "Simma" , I know thw feeling.  Við Geir eigum sinn hvorn strákinn fyrir og tvo saman.  Okkar samband var stundum svoldið þannig að " strákurinn þinn og strákurinn minn, eru að berja börnin okkar!!  Gaman að lesa bloggið þitt. Netlöggan þín!!!!!!!

Vilborg Traustadóttir, 25.3.2007 kl. 13:31

4 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

já mér þótti alltaf svolítið súrt að eiga ekki eitt einasta hálfsystkin, einn pabba og eina mömmu og svo hét ég líka bara einu nafni til að kóróna þetta allt saman ...langaði voða mikið að heita Herdís Anna...

Ég ætti kannski að sækja um Netlögga til mannanafnanefndar...það er aldrei að vita nema það yrði samþykkt.

kv, Herdís Netlögga Sigurjónsdóttir

Herdís Sigurjónsdóttir, 25.3.2007 kl. 14:08

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Góður punktur Raggi.. ánægð með nöfnin á dætrunum, ég á meira að segja Sturlu  

já með kaffið..ég sit einmitt hér og drekk mitt kaffi um leið og ég "spjalla" við þig á blogginu. En ég á það samt til að siglfirskum sið að droppa inn hjá fólki, án viðvörunar .....og eru flestir búnir að sætta sig við það, en það er rétt, við höfum allt of lítinn tíma.

Herdís Sigurjónsdóttir, 26.3.2007 kl. 11:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband