Hvað segir þetta okkur?

Ég er verulega hugsi yfir þessari könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið dagana 3. til 9. apríl um það hvort fólk sé hlynnt því að settar verði strangari reglur um heimildir útlendinga til að setjast að hér á Íslandi.

Samkvæmt henni eru 56,2%, er hlynntur því og þar af segjast 26,4% vera mjög hlynnt því en 29,8% segjast frekar hlynnt því. 13% segjast hvorki vera hlynnt né andvíg því að reglur verði hertar en 18,2% segjast frekar andvígir því og 12,5% segjast mjög andvígir því.

Yfir 70% þeirra sem hyggjast kjósa Framsóknarflokkinn í alþingiskosningunum í vor vilja að settar verði strangari reglur um heimildir útlendinga til að setjast að hér á landi, en færri hjá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og VG. Ekki er hægt að sjá hvernig staðan er hjá Frjálslyndum þar sem þeir eru flokkaðir með öðrum flokkum, en þeir hafa 68,6%.

Það er ekki víst að fólk þekki almennt það kerfi sem nú er í gangi og því velti ég því fyrir mér hvort þessi skoðanakönnun endurspegli í raun skoðun þjóðarinnar. 


mbl.is Meirihluti hlynntur hertum reglum um landvist útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

já alltaf gott að vekja fólk til umhugsunar, sammála því og það tókst í þessu tilfelli. Þetta með reglurnar sem þú nefnir er nákvæmlega það sem ég meinti, ég held að fólk þekki ekki kerfið sem í gildi er.

Herdís Sigurjónsdóttir, 16.4.2007 kl. 14:45

2 Smámynd: LM

Ég held nú einmitt að öfgafullar yfirlýsingar VG nú upp á síðkastið valdi því að fólk stígur á bremsurnar. 

Reglurnar hér eru góðar svo langt sem þær ná en eitthvað virðist vanta upp á bæði í almennri fræðslu og íslenskukennslu.  Miðað við núverandi ástand virðumst við nú varla ráða við núverandi ástand, hvað þá fjölgun innflytjenda. 

LM, 16.4.2007 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband