Skóli fyrir börn frá eins árs til 9 ára

Í Mosfellsbæ er verið að stíga stórt skref í skólaþróun í landinu með Krikaskóla sem verður fyrir börn frá eins árs til 9 ára, sem er nýmæli í landinu. Þessa dagana er verið að auglýsa eftir fagfólki til samstarfs við að móta hugmyndafræði skólastarfsins og að hanna skólahúsnæðið. Mosfellsbær vill með þessu bjóða upp á meiri fjölbreytni í skólastarfi og auka þjónustu við foreldra. Í forsögninni er gert ráð fyrir því að ná fram samfellu í skóladegi barnanna og flétta saman leik, kennslu, listnám, frístundastarf og heilsueflingu.

Byrjað var að afhenda forvalsgögn í dag 16. apríl í Þjónustuveri Mosfellsbæjar í Þverholti 2 og á skrifstofum VSÓ ráðgjafar í Borgartúni 20, í Reykjavík. Ég hef trú á því að margir hafi áhuga á að koma að þessu spennandi þróunarverkefni, en það kemur í ljós hvort ég reynist sannspá þegar frestur til þátttöku rennur út þann 7. júní kl. 14.00.

Mynd_0258363


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rosalega finnst mér þetta spennandi mál. Hlakka til að fylgjast með þessu. Veistu hvar þetta hefur verið praktiserað? kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 17.4.2007 kl. 14:38

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Þetta er nýtt á Íslandi og með þessu verða önnur skólaskil en þekkjast í dag.   Þetta er mjög spennandi líka af því að við erum að leita teymum hönnuða og hugmydasmiða, sem sameiginlega móta skólastarfið og hanna góða umgjörð um það. 

Ég lofa því að upplýsa þig um málið .

Herdís Sigurjónsdóttir, 17.4.2007 kl. 15:01

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Jamm, veit að þetta er nýtt á Íslandi, en var að spá í hvort aðrar norðurlandaþjóðir hefðu prófað þetta??

Ásdís Sigurðardóttir, 17.4.2007 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband