Gleðilegt sumar

Sól á sumardaginn fyrsta

Kæru vinir, bloggvinir og lesendur nær og fjær, gleðilegt sumar.

Þá hefur vetur konungur kvatt og hér í Mosfellsbænum er sumardagurinn fyrsti bjartur og fagur. Í dag ætlum við Mosfellingar að vígja nýja sundlaug og íþróttamiðstöð við Lágafellsskóla og verður mikið um dýrðir, enda er mikil ánægja með þessa glæsilegu fjölskyldulaug með flottu rennibrautunum.

Það má segja að utan vígslunnar verði hefðbundin hátíðarhöld. Skrúðganga frá Kjarna sem skátarnir leiða og munu þeir síðan bjóða upp á, veitingar,  leik og sprell við Lágafellsskóla og verða því skátarnir mínir tveir uppteknir og við hin njótum. Diddú mun syngja og skólahljómsveitin spila þannig að allt stefnir í fyrsta flokks skemmtun í Mosfellsbænum á sumardaginn fyrsta.

Ég hef gaman að gömlum siðum og fann þetta á netinu um sumardaginn fyrsta og ákvað að leyfa ykkur að njóta.

Sumardagurinn fyrsti:

  • er á fimmtudegi, 19.-25. apríl
  • er gamall hátíðisdagur
  • var mikill hátíðis- og veitingadagur eins og jól eða nýár
  • er einn af ellefu löggiltum fánadögum íslenska lýðveldisins

Sumargjafir eru þekktar frá 16. öld og eru miklu eldri en jólagjafir

Það er gamall siður að óska hver öðrum gleðilegs sumars

Ekki var unnið nema nauðsynjastörf og táknræn sumarstörf og fór fólk yfirleitt í spariföt

Börn notuðu daginn til að leika sér, komu mörg saman og sums staðar tóku fullorðnir þátt í leikjunum

Sumir hleyptu hrútum, kálfum og jafnvel kúm út úr húsi, ef gott var veður, til að leyfa dýrunum að heilsa sumrinu og skemmta sér við að horfa á leik þeirra

Frá árinu 1921 er sumardagurinn fyrsti gerður að barnadegi og gefið frí í skólum

þjóðtrú fylgir komu sumars:

  • það boðaði gott sumar ef sumar og  vetur „frusu saman" aðfaranótt sumardagsins fyrsta (sett var út skál með vatni undir bæjarvegg í skjóli frá morgunsól og athugað snemma morguns)
  • þegar maður sá fyrsta tungl sumars átti hann að þegja þar til einhver ávarpaði hann og var hægt að lesa véfrétt í ávarpinu, og hét þetta að láta svara sér „í sumartunglið"
  • algengt var að fólk vildi ekki láta bjóða sér góða nótt eða ráðleggja sér að fara að hátta eða hvíla sig, en það átti að boða feigð

Sumarboðar voru margvíslegir enda skipti veðrið miklu máli á vori og  sumri:

  • draumar, komutími farfugla, atferli skordýra, orma, húsdýra og gróðurs
  • spáfuglar voru (og eru) lóan og spóinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Gleðilegt sumar bloggvinkona

Til hamingju með sundlaugina og takk fyrir fróðleiksmolana  

Jóhanna Fríða Dalkvist, 19.4.2007 kl. 11:00

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gleðilegt sumar, vorstelpa!

Vilborg Traustadóttir, 19.4.2007 kl. 11:03

3 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn

Ágúst Dalkvist, 19.4.2007 kl. 13:49

4 identicon

Gleðilegt sumar elsku Herdís mín og takk fyrir veturinn. Megi sumarið færa okkur sól og aftur sól.....og svo smá hita með.

kveðja og sumarknús, Linda Ósk

Linda (IP-tala skráð) 19.4.2007 kl. 16:50

5 Smámynd: Karl Tómasson

Gleðilegt sumar sömuleiðis mín kæra.

Takk fyrir frábærann dag.

Bestu kveðjur til þín og þinna.

Kær kveðja frá K. Tomm.

Karl Tómasson, 19.4.2007 kl. 19:57

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gleðilegt sumar kæra B-vinkona, héðan er sko allt fínt að frétta, fór með húsbandið á kosningaskrifstofuna í dag, það var svooo gaman, okkur líður aldrei eins vel eins og eftir  góða sjalla hitting. Þarna voru margir frambjóðendur mættir og mikið gaman. Jóhanna úr X-factor söng ofl.  takk fyrir skemmtilega lesningu hjá þér, elska svona gamalt og gott. Geturðu gefið mér uppl. um skóla 1-9 ára, er eitthvað til á netinu, form. skólanefndar hér (ég er í nefndinni) hefur áhuga á að kynnast þessu og ég líka.  Kær sumarkveðja frá Selfossi

Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2007 kl. 20:36

7 Smámynd: Bjarkey Gunnarsdóttir

Takk fyrir kveðjuna Herdís. Gleðilegt sumar til þín og þinna.

Til hamingju með nýju fjölskyldulaugina ykkar. Alltaf gaman að víga eitthvað sem kemur mörgum vel.

Kveðja úr Ólafsfirði

Bjarkey

Bjarkey Gunnarsdóttir, 19.4.2007 kl. 23:37

8 Smámynd: Andrea

Gleðilegt sumar sömuleiðis  Ég er orðin ansi fróð um þennan skemmtilega dag eftir að hafa lesið þessa færslu

Andrea, 20.4.2007 kl. 01:26

9 Smámynd: Jón Brynjar Birgisson

Gleðilegt sumar, Herdís. Hlakka mikið til að hitta þig aftur í vinnunni.

Jón Brynjar Birgisson, 20.4.2007 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband