Fjölskylduhátíð XD í fjölskyldu- og húsdýragarðinum

c_documents_and_settings_herdis_my_documents_my_pictures_m2

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl mín kæra.

Þakka fyrir síðast.  Ánægjulegt að fylgjast með blogginu þínu. Tek undir óskir þínar um að Ragheiður fái að starfa fyrir okkur þarna við Austurvöllinn - mögnuð kona þar á ferð :)

Sá að þú hafðir vitnað í póstinn sem ég sendi um ,,langa fríið þitt" þetta frá 30. apríl til 1. maí.  Mér fannst þetta bara nokkuð veglegt orlof ... Annars er margt skemmtilegt að sjá á vefnum þessa dagana.  Ef þú ferð á vef svæðisvinnumiðlunarinnar hér á Norðurlandi vestra getur þú til dæmis lesið auglýsingu frá Blönduósbæ þar sem auglýst er eftir fullum einstakling í starf fjármálastjóra.  Geri reyndar ráð fyrir að ætlunin hafi verið að ráða einhvern í fullt starf en mér fannst þessi hæfniskrafa nýstárleg. 

Ég náði upphafsmínútunum af sameiginlegum framboðsfundi hér á Krók fyrr í dag. Varð reyndar að láta mig hverfa  fljótlega þar sem ég var með tvo framtíðarkjósendur með mér sem höfðu takmarkað þol fyrir boðskap stjórnmálamanna, þrátt fyrir loforð um mikinn ís að launum fyrir kyrrsetu.

Er annars að lesa undir síðasta prófið að sinni - læt eins og ég viti ekki að allir , og þá meina ég ALLIR Skagfirðingar, eru úti að njóta lífsins á dúndrandi Sæluviku.

Gott í bili - gangi ykkur vel í baráttunni./ KMA

Katrín María (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 00:23

2 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Góða skemmtun bloggvinkona

Jóhanna Fríða Dalkvist, 5.5.2007 kl. 08:42

3 Smámynd: Andrea

Æj, en leiðinlegt að missa af þessu!

Andrea, 5.5.2007 kl. 17:21

4 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já mikið fjör þessa dagana... en ekki í Skagafirði  Kata mín, ekki fyrr en eftir próf ......

Meiriháttar hvað gekk vel á flugslysaæfingunni á Króknum um síðustu helgi ;-)...enda góður grunnur lagður hjá gamla svæðisnuddaranum

Herdís Sigurjónsdóttir, 5.5.2007 kl. 17:48

5 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Það er nú ekki oft sem sett er skilyrði um að fólk sé geti reiknað fullt  ... ég þekki samt nokkra peningamenn sem gætu uppfyllt bæði skilyrðin

Herdís Sigurjónsdóttir, 5.5.2007 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband