Gleðilega þjóðhátíð

Herdís og Ragnheiður á 17. júní

Jæja þá eru skátarnir á heimilinu farin út til að setja upp sjoppuna og undirbúa daginn, en hér í Mosfellsbænum eru skátarnir virkir þátttakendur í dagskrá 17. júní. Það verður gaman hér í dag eins og sjálfsagt um allt land á þessum degi og sannkölluð fjölskylduskemmtun. Ég þarf ekki að sinna neinum embættisverkum og er eina verkefnið sem ég hef í dag er að koma með brauðtertu á hlaðborðið í Hlégarði sem Sturlumamma og því verður maður mest bara í að njóta gírnum, sem er dásamlegt á svona fallegum degi.

Gleðilega þjóðhátíð!

Dagskrá 17. júní 2007 í Mosfellsbæ

Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11:00

Prestur: sr. Ragnheiður Jónsdóttir

Einsöngur: Hanna Björk Guðjónsdóttir

Organisti: Jónas Þórir

Kirkjukór Lágafellssóknar

Skátar standa heiðursvörð.

Hátíðardagskrá í Bæjarleikhúsi kl. 13:00

  • Setning hátíðar
  • Ávarp fjallkonu
  • Álafosskórinn
  • Hátíðarræða
  • Bæjarlistarmaður Mosfellsbæjar heiðraður

Skrúðganga frá Bæjarleikhúsi að Hlégarði kl: 14:00

Skátar leiða gönguna. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tekur á móti bæjarbúum

Hátíðardagskrá á Hlégarðssvæðinu

  • Leikskólabörn frá Reykjakoti skemmta bæjarbúum
  • Leikfélag Mosfellssveitar með uppákomu
  • Skoppa og Skrítla
  • Stúlkur úr 6. bekk Varmárskóla syngja
  • Fjöllistamaðurinn The Mighty Garath
  • Stúlkur úr fimleikadeild UMFA
  • Tívoli, leikir, glens og gaman með félögum úr Mosverjum

Kl. 16:00

Sterkasti maður Íslands!

Sterkustu menn landsins keppa um titilinn sterkasti maður Íslands.

Kökuhlaðborð UMFA

Kl. 19:30 - 22.00

Fjölskylduskemmtun við Hlégarð

  • Galdramaður
  • Magni og Á móti sól
  • Mosóbönd

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Já, gleðilega þjóðhátíð, kæri bloggvinur .Við, Kristín Ingiríður, erum stödd heima á Siglufirði. Við komum hingað í gær á nýja Ciddanum okkar eftir þægilega ferð að sunnan. Við sáum lögregluna á Blönduósi einungis hafa afskipti að einum ökumanni, en daginn áður hafði hún stöðvað um 100 ökuþóra ! Það er greinilegt, að aukin gæsla á þjóðvegum landsins skilar sér vonandi í færri umferðaslysum.

Bestu kveðjur frá þinum gamla heimabæ, kæra Herdís ! KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 17.6.2007 kl. 11:40

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn. Þetta er heilmikil dagskrá og vonandi gengur allt vel. kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 17.6.2007 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband