Ferðaklúbbur Rituhöfðans á ferð og flugi

Rituhöfdaliðið

Það má segja að veðrið hafi verið köflótt um helgina. Við fjölskyldan vorum að koma heim, en við skelltum okkur í Grímsnesið og vorum á tjaldsvæðinu í Hallkelshólum með nágrönnum okkar úr Rituhöfðanum. Það var mikið fjör og verð ég bara að játa að fellihýsalífið á ágætlega við mig, ég sem hélt að það yrði bara Hótel Edda og mamma "for the rest of my life". Það er eitt við þetta sem er svo Xtra gaman, en það er þessi nána samvera með fjölskyldunni.  Síðan fengum við Rúnar, Björk og Eyþjór Andra í heimsókn á föstudagskvöldið og svo hitti ég húsbílaútilegufólkið Diddu frænku og Valda í gær og eigum við örugglega eftir að eiga viðskipti við þau vegna fortjaldsins við fellihýsið okkar.

Í gærmorgun vöknuðum við árla við að skyggnið á fauk yfir vagninn og náðum við að bjarga því áður en skaði hlaust af, en nágrannar okkar voru ekki eins heppnir því þeirra rifnaði af. Við vorum orðin nokkuð súr yfir öllu rokinu, en svo lægði loksins og verða minningar helgarinnar örugglega sól og logn, en ekki rokið. Enda búum við á Íslandi, þar sem allra veðra er von.

Hér eru myndir úr útilegunni.

 

 


mbl.is Víða hlýtt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta hefur verið frábær helgi´, þrátt fyrir fok og annað. Gott að þið eruð komin heil heim.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.6.2007 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband