Árið sem við unnum kappróðurinn

7bb2811499eeb133720ef98258df758a

Á Siglufirði hefur alltaf verið mikið fjör á sjómannadaginn. Mikið var um netabætingar, kappróður og koddaslag og svo náttúrulega sipp og hoj um kvöldið. Allir tóku þátt, ekki bara sjómenn og voru þá líka lið frá hinum og þessum fyrirtækjum í keppnunum. Ég tók eitt sinn þátt í kappróðri með liði frá sjúkrahúsinu og grilluðum við stelpurnar róðurinn ásamt Andrési yfirlækni sem hélt okkur við efnið og hvatti óspart. Þetta var árið 1986 ef ég man rétt og síðan eru liðin mörg ár.


mbl.is Pólskur sigur í koddaslag á Húsavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þegar ég var 15 ára og var að vinna í frystihúsinu þá keppti ég í kappróðri og fékk medalíu. Alltaf gaman á sjómannadaginn.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.6.2007 kl. 20:38

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já ég vann í fiski í hundrað ár á Siglufirði og er nokkuð stolt af því að hafa reynt allt allt allt í fiskvinnslunni og ekki síst af því að hafa verið á sjó líka .. já alltaf gaman á sjómannadaginn.

Herdís Sigurjónsdóttir, 2.6.2007 kl. 20:53

3 Smámynd: Marinó Már Marinósson

Eina skiptið sem ég tók þátt í sjómannadeginum var fyrir allmörgum árum.  Sýndi bæjarbúum hvernig ætti að opna björgunarbát sem var á hvolfi í sjónum.  Stökk útí sjóinn og ...... kuldasjokkið var rosalegt.  Náði með herkjum að klára sýninguna en þetta hefur örugglega stoppað sjómennskudrauma mína.  Sjómennskan er ekkert grín.

Marinó Már Marinósson, 2.6.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband