Reykjaskólamótið framundan

Reykjaskóli

Ég trúi því vart að aðeins sé vika í Reykjaskólamótið okkar Reykskælinga sem vorum í Reykjaskóla í Hrútafirði árin 1980-1982. Næsta föstudag mun ég bruna í Hrútafjörðinn og koma mér vel fyrir í gamla herberginu mínu á Sundlaugarvistinni, herberginu sem ég var í seinna árið mitt í skólanum.

Stemmingin fyrir mótinu hefur verið að stigmagnast og 10 dögum fyrir hátíðina voru  70 fyrrum nemendur búnir að skrá sig og lengist listinn með hverjum deginum.

Ég var að rifja upp tímann frá því í lok febrúar þegar ég fékk bréfið frá hátíðarnefndinni. 

"Komið þið öll sæl og blessuð.

Þá er búið að senda nánast öllum Reykjaskólanemendum "80 til "82 bréf, alls 172 stk, en þó eru nokkrir sem búsettir eru erlendis. Nöfn þeirra verða birt áður en langt um líður þannig ef einhver skyldi vera í sambandi við viðkomandi getur hann látið vita.

Eins munu kennarar fá bréf  en þeir eru auðvitað velkomnir."

Ég er ekki viss en trúlega hef ég gargað þegar ég las bréfið, því fjölskyldan leit undrandi á mig.

Það var aldrei spurning hvort ég færi á mótið,  talandi um forgangsröðum. Ég meldaði mig á heimasíðunni að beiðni hátíðarnefndar og lét þau Bjarka, Daddý, Eika, Ragga Kalla og Siggu vita hvað mér þætti þau frábær að starta þessu. Nú sem fyrrverandi fulltrúa í ritnefnd Reykjaskólablaðsins (hefði verið netsíðustjóri ef internetið hefði verið til) bauðst ég til að senda myndir til að setja inn á síðuna .... það leið ekki nema sólarhringur þangað til ég var búin að bjóða fram aðstoð mína við að safna saman myndum og setja saman Reykjaskólamyndband W00t.

Þessi tími sem liðinn er frá því að ég skrifaði fyrstu færslunaum mótið 28. febrúar sl. hefur verið viðburðarríkur og skemmtilegur. Aðkoma mín að Reykjaskólasíðunni átti eftir að aukast því boð mitt um aðstoð var þegið. Ég hafði smá áhyggjur af því að þau RSK + BED myndu sjá eftir því þegar ég réðst á síðuna, breytti útliti og hóf að setja inn færslur ...... en ég slapp við skammir. 

Þá hófst myndasöfnun og gerði ég tilraunir til að fá minningarbrot frá nemendum...en það voru bara bloggararnir Habba, Gunna Jóns, Imba og svo sendi Didda Jóns vinkona mín Reykjaskólasögu ... jú og svo fengum við líka senda kveðjur frá Jónínu Ben sem var ánægð með framtakið og ætlaði að mæta (en held samt að hún hafi ekki skráð sige ennþá) og Bredda eða Kristni Breiðfjörð kennara og núverandi skólastjóra og Elísabetu konu hans sem kemst ekki. 

Það gekk aðeins betur með myndirnar. Ég fékk myndasendingu frá Ómari Má félaga mínum og sveitarstjóra í Súðavík, Ásgeir JónsGunna Jónsog svo Bjarki setti inn frábærar myndir, svo fékk ég heilt myndaalbúm frá Höbbu og tvö albúm frá Daddý og skannaði ég inn myndir úr þeim og setti inn.  

Ég lagðist í rannsóknir, enda vísindamaður inn að beini og skoðaði reyndi ég að hafa upp á fyrrum nemendum, mér til ánægju og yndisauka. Það var gaman að sjá hvað leyndust margir kennarar í hópnum og pólitíkusar og hvað hefur nú ræst úr liðinu. Ég fann nú bara einn prest og einn lækni, en kannski eru fleiri slíkir í hópnum án þess að ég hafi haft upp á þeim.

En það var heldur gaman þegar ég fékk í hendur upptökurnar frá Ragga Kalla. Frá Hippabandinu og hljómsveitakeppni sem haldin var í Reykjaskóla og hafa lögin algjörlega slegið í gegn. Ég skellti nokkrum myndum með tónlistinn svo fólk gæti nú upplifað gamla fílinginn og held að það hafi einmitt verið það sem fólk vantaði því Hátíðarnefndin hafið ekki við að skrá aðdáendur sem ekki ætla að missa af comebackinu.

Ég mátti til með að kom við í Reykjaskóla á leið minni á Siglufjörð í síðustu viku og renndi á smókinn... en ég held að flestar myndirnar sem teknar voru hafi einmitt verið þaðan ... svo hitti ég Palla Fanndal á Siglufirði og kom í ljós að hann hafði gert nákvæmlega það sama LoL

Þetta heimasíðustúss með Hátíðarnefndinni er búið að gefa meistararitgerðarskrifsumrinu heilmikla tilbreytingu verður ekki lítið gaman að hitta allt liðið í eigin persónu eftir 5 daga.

gamli góði smókurinn í Reykjaskóla

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hef misskilið þig í vor, hélt þetta væri búið, en mikið rosalega held ég að það verði gaman hjá ykkur,  skemmtu þér vel kæra hálfnafna og njóttu ferðarinnar. 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.8.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: Hrefna Gissurardóttir

Hey Herdís, þú átt nú ekkert smá mikið hrós skilið fyrir þína vinnu, þú ert bara búin að vera dugleg sá að þú ert komin með herbergisnúmerið og allt á hreinu? o.k er búið að raða okkur hinum gamlingjunum niður á herbergi? Hlakka bara til að hitta þig og alla hina. Er samt ekki viss um að ég þekki alla  kveðja Habba

Hrefna Gissurardóttir , 3.8.2008 kl. 22:27

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Já hálfnafna þetta verður ekkert smá gaman og ég er ekki í nokkrum vafa að ég á eftir að njóta hverrar mínútu.

Takk Habba mín mikið verður nú gaman að hitta þig og öll hin eftir öll þessi ár. Ég hef rosalega gaman að þessum heimasíðumálum og því var þetta engin pína ... það var mesta gaman að sjá hvað stemmingin óx og heimsóknum fjölgaði jafnt og þétt. Svo verðum við að halda þessu áfram, þ.e. að hittast á 5 ára fresti eða svo.

Herdís Sigurjónsdóttir, 3.8.2008 kl. 22:45

4 Smámynd: Hrefna Gissurardóttir

Sammála Herdís, það hefur liðið alltof langur tími, svo langur að fyrst var maður í vafa hvort að maður ætti yfir höfuð að vera að mæta þar sem að maður þekkir nánast engan? En ég lýt á þessa helgi eins og að fara að hitta fjarskylda ættingja á ættarmóti,sem að ég hef ekki hitt lengi við vorum nú á þessum tíma eins og systkini? En mikið er smókurinn gamli orðin ljótur ætla nú samt á hann á laugarskvöldið. Kveðja til þín og allra í kringum þig. kveðja Habba

Hrefna Gissurardóttir , 3.8.2008 kl. 22:57

5 identicon

Hva, mín bara búin að skipta um útlit?

Linda (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 22:46

6 Smámynd: Ingibjörg R Helgadóttir

Ohh.... hvað ég hlakka til að hitta þig ....já og alla hina

Ingibjörg R Helgadóttir, 7.8.2008 kl. 23:43

7 identicon

Við fyrstu sýn virðist hún frekja og merkikerti og í þau fáu skipti sem hún fer í vont skap þá er best fyrir aðra að vera ekki að skipta sér að henni .......hummmmmmmmmmmmm og hahahaha en þessa skemmtulegu lesningu rakst ég á í góðri bók sem mér var sýnd fyrr í dag hér fyrir vestan (er í Grundarfirði í þessum skrifuðu orðum)  

Þú ert yndisleg eins og þú ert elsku vinkona og ég vona að þú hafir skemmt þér vel um helgina. Frétti að mótið hafi heppnast vel  Love you.

Linda Ósk Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband